Bergmál - 05.01.1954, Page 22
B E R G M Á L---------------------------J A N Ú A R
Daniéle og Daniel heita þau þessi
ungu hjón. Þau eru bæði fræg, sem
kvikmyndaleikarar, en enda þótt þau
hafi verið gift í átta ár, hafa þau
aldrei leikið saman í kvikmynd fyrr
en nú, en það er í kvikmynd, sem heit-
ir „Lífsbarátta", og gerð er eftir stuttri
skáldsögu eftir Remo Ciacelli.
Þau byrjuðu bæði leiklistarferil sinn
á unga aldri og næstum samtímis, og
mátti heita að þau væru að byrja
listnám sitt er þau kynntust, urðu ást-
fangin hvort af öðru og giftu sig. —
Fyrstu árin börðust þau hreystilega
fyrir því að geta stundað leiklistar-
námið jafnframt því að þurfa að fram-
fleyta sér af eigin ramleik. Nú eru
þau talin standa í fremstu röð franskra
leikara. Þau hefir lengi dreymt um að
fá að leika saman í kvikmynd, en
kvikmyndahandritin, stj órnendurnir
eða aðrar ástæður hafa ávalt hindrað
það til þessa, að sá draumur gæti
rætzt. Það er fyrst nú í myndinni
„Lífsbarátta", fyrstu kvikmynd, sem
Daniel Gélin annast leikstjórn í, —
að hann hefir getað valið eiginkonu
sína Daniéle Delorme í aðal-kven-
hultverkið, en aðal-karlmanns hlut-
verkið leikur hann sjálfur. — Þeim
fannst það í fyrstu undarlegt og
öðru vísi en þau höfðu búist við að
leika saman. Það var líkast því, að
þau færu hjá sér, er þau léku saman
persónur, sem í mörgu líktust þeim
sjálfum, sögðu og gerðu ýmislegt, sem
ef til vill hafði hent þau sjálf á lífs-
leiðinni. Þegar Chaplin heimsótti þessi
frönsku leikarahjón á meðan stóð á
upptöku myndarinnar, trúðu þau
þessum aldna og viðurkennda lista-
manni fyrir hugrenningum sínum:
„Þar hafið þið einmitt lykilinn,"
sagði Chaplin, „að 'skilningi á sál
þeirra, sem þið eigið að túlka. Ykkar
eigin reynsla og lífsbarátta gerir ein-
mitt persónur leiksins lífrænni í með-
ferð ykkar ...“
Þessi ágæta skáldsaga, „Lífsbarátta",
britist í Bergmáli einhverntíman á
næstunni og verður þá vonandi hægt
að láta nokkrar ljósmyndir úr kvik-
myndinni fylgja.
Joe hristi höfuðið. „Nei, þá
hefði báturinn verið ofhlaðinn.“
„Ef hann hefir stefnt beina
leið norður til fjalla, þá verðum
við að ná honum áður en hann
kemst upp á Nautavatn,“ sagði
Brand. „Þú kemur með, Joe, sem
leiðsögumaður. Við leggjum af
stað, að klukkustund liðinni."
Þeir lögðu af stað þrír saman,
Brand, Joe og skógarvörðurinn,
enda þótt bæði Brand liðþjálfi
og Joe gamli hefðu fremur kos-
ið að skilja skógarvörðinn eft-
ir, þennan hvít-bleika ungling,
sem aldrei myndi samlagast
20 —