Bergmál - 05.01.1954, Síða 25

Bergmál - 05.01.1954, Síða 25
1954 hann var faðir Mörtu. En þeir höfðu reynt að gera Mörtu mein og nú skyldu allir verða skotnir eins og hundar, og svo héldi hann óáreittur áfram ferð sinni með Mörtu norður til lands móðurfrænda sinna. „Gabriel, ef þú skýtur á þá, munu þeir drepa þig. Því ekki að gefast upp strax, — þá gera þeir þér ekkert mein?“ Gabriel hló hátt. Hann var enn hamingjusamur, enda þótt hann hataði líka. „Þú skalt ekki segja mér, hvað mér ber að gera, Marta.“ Langa stund heyrðist ekkert nema andardráttur Mörtu og andardráttur Gabriels og niður- inn í Nautafljóti langt niður frá. „Gabriel,“ rödd liðþjálfans var miklu nær þeim nú. Hann hlaut að hafa skriðið á magan- um í áttina til þeirra. „Já, liðþjálfi," svaraði Ga- briel. „Ég ætla að gefa þér tækifæri til að bjarga lífi þínu. Réttu báðar hendur upp yfir höfuð þér og komdu út úr kletta- sprungunni.“ „Og afhenda Mörtu þessum manni? Nei, liðþjálfi.“ Hann var að því kominn að skjóta á stað- inn, þar sem hann þóttist vita ----------------- Bergmál að liðþjálfinn væri, þegar Marta kom skyndilega fram úr kletta- sprungunni og stóð á fætur. „Leggstu niður, Marta!“ hróp- aði Gabriel. „Niður.“ — Þeir mundu skjóta hana. Hún skeytti engu aðvörunum hans. „Liðþj álfi,“ hrópaði hún. „Brand liðþj álfi.“ „Já.“ „Liðþjálfi, ég ætla að fara með Gabriel.“ Andartak ríkti dauðaþögn. En brátt var þögnin rofin af ó- stöðvandi reiðilestri liðþjálfans: „Ekki nema það þó, láta kven- mann hafa sig að fíf-li eftir sjö daga eftirför.“ Svo var eins og bráð hefði svolítið af honum, „ertu alveg viss, Marta? Veiztu hvernig maður hann er?“ „Já, ég veit það. — Hann er góðhjartaður drengskap>armað- ur.“ „Jæja, jæja, þú verður að fá samþykki föður þíns,“ kallaði hann og var nú orðinn miklu spakari. „Komdu hingað, liðþjálfi,“ kallaði Gabriel, „en ekki skóg- arvörðurinn, nema því aðeins að hann langi til að fá kúlu í skrokkinn.“ Gabriel var ekki Framh. á bls. 28. 23

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.