Bergmál - 05.01.1954, Qupperneq 29
B E R G M Á L
1 9 5 4 ------------------------
var dásamlegt boð. Auðvitað
kem ég í næsta sunnudagsboð.“
Þegar hún kom heim í litla
herbergið sitt, lagði hún men-
ið á náttborðið hjá rúminu sínu,
horfði á það og hágrét.
Henni tókst ekki að festa
blund fyrr en langt var liðið á
nótt, og hún var því í fasta
svefni, er kallað var á hana í
símann, klukkan hálftíu morg-
uninn eftir.
„Ert það þú, stelpa?“ sagði Ab
Berman í símann. „Náðu þér í
leigubíl á stundinni og komdu
til móts við mig í Super eftir
hálftíma. Nú er von í góðum
bita. Það vantar unga stúlku í
hlutverk daufdumbrar en stór-
glæsilegrar konu, og allt er að
verða tilbúið til myndatöku.
Það er Corny Klein, sem stend-
ur að baki, en Joe Hilton er
leikstjóri. Sagði ég ekki, að ég
myndi geta krækt í eitthvað
gott handa þér?-------Auðvitað
er ég viss. Ég hefi ekki unnið
hér til einskis í tvö ár. Flýttu
þér nú.“
Anna klæddist í flýti og stakk
meninu í barm sér.
„Útlitið er fyrsta flokks,“
sagði Klein.
„Já, vissulega,“ sagði Hilton,
„en getur hún nokkuð leikið?“
„Getur hún leikið?“ át um-
boðsmaður Önnu upp eftir hon-
um. „Þarftu að spyrja mig að
því. Yertu alveg rólegur, ég
myndi ekki bjóða þér upp á
stelpu, sem ekki gæti leikið.“
„Hve dýr er hún?“ spurði
Klein.
„Bíddu fyrir framan á meðan
ég ræði um fjármálin við þá,
dúfan mín,“ sagði Ab Berman
við Önnu, „svo ek ég þér heim
í bílnum mínum á eftir.“
Fimm mínútum síðar kom
hann fram fyrir til Önnu og
leiddi hana með sér út í bílinn.
„Þú færð þarna viku vinnu
og launin verða 250 dollarar.
En þú getur verið viss um það,
að það var ekki fyrirhafnarlaust
að fá þá til að samþykkja slík-
an samning. — „Ekki einu centi
minna,“ sagði ég. — „En hvað
er að, telpa? Ertu ekki ánægð
með þessi kjör?“
„Jú, jú, Ab, þetta er prýði-
legt,“ sagði Anna. „Alveg dá-
samlegt.“ En við sjálfa sig
sagði Ab Berman um leið og
gleypti mig — ég vildi að ég
væri steindauð.
„Þú ert öll í uppnámi, barn,“
sagðið Ab Berman um leið og
hann skilaði Önnu heim að
dyrum.
Eg vildi að jörðin gleypti mig.
Ég vildi að ég vœri steindauð.
27