Bergmál - 05.01.1954, Page 32

Bergmál - 05.01.1954, Page 32
Bergmál ------------------- nú aldrei undir höfuð leggjast. Dag nokkurn, er hann hafði að venju þuklað líkama hennar áður en hann bjóst á veiðar og að þessu sinni sagt: „Betur má, ef duga skal.“ Þá var henni loks nóg boðið, bjó hún sig til ferða- lags og lagði á flótta í áttina til æskustöðva sinna. En svo feit var hún orðin, að hún gat ekki gengið eins og venjuleg mann- eskja. Voru för hennar iíkust tveim plógförum með allbreiðu millibili. Ekki gat hún með nokkru móti tekið hvorn fótinn fram fyrir annan. Hún beitti allri sinni orku til að reyna að ná heim til bræðra sinna, sem allra fyrst, en hún átti þó eftir alllanga leið þegar leið að þeim tíma, sem maður hennar var væntanlegur heim og hún var sannfærð um, að hann myndi veita henni eftir- för. Hún fór því að litast um eftir einhverjum felustað og fann að lokum rekaviðardrumb, sem kastast hafði upp á ströndina. Stofninn var næstum eins sver og búturinn var langur.. Hún var nú orðin viss um, að maður hennar myndi ná henni áður en hún kæmist heim til bræðra sinna og því nam hún staðar við rekaviðarbútinn og hugðist ___________________ JANÚAR bregða fyrir sig því litla, sem hún kunni til galdra. Hún fór nú að særa drumbinn með þessum orðum: „Þú stóri trédrumbur, þú sveri stofn! Megir þú flettast, megir þú klofna, megir þú opnast!“ Jafnskjótt fóru að heyrast brestir í trénu og sprungan sem myndaðist var svo rúmgóð, að Masaunaq komst hæglega niður í hana. Og er hún hafði komið sér vel fyrir í sprungunni, þuldi hún nýja galdjra-formúlu: „Þú stóri trédrumbur, þú sveri stofn! Lát sprungu þína lokast á ný, lát sár þitt gróa!“ Rekaviðardrumburinn lokað- ist strax, svo fullkomlega, að engin glufa sázt að utan verðu. Hún lá grafkyrr og að lítilli stund liðinni, heyrði hún marra í snjónum úti fyrir og því næst raust manns síns. Hann var að tala við sjálfan sig og sagði: „Það var fjandi ergilegt, að ég skyldi ekki vera búinn að slátra henni. Hún var í raun og veru orðin nógu feit. Það var 30

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.