Bergmál - 05.01.1954, Qupperneq 38
Bergmál ------------------
fyrstu löndunum, sem stórveld-
in í Evrópu hittu á eftir fund
Ameríku. Bretar, Hollendingar
og Frakkar börðust um yfirráð-
in. Sjóræningjar úr Karabiska-
hafinu réðust á nýlendubúa og
allt, sem þeim tókst að byggja
upp. Brenndu, rændu og eyði-
lögðu allt, sem á vegi þeirra
varð, svívirtu konur og drápu
menn miskunarlaust. Og á þann
hátt varð lífið í þessari nýlendu
strax blandið þjáningum, erfið-
leikum og sorg. í Frakklandi
fóru menn því brátt að gera sér
ljóst, að uppbygging blómlegs
ríkis í þágu frönsku þjóðarinn-
ar á þessum fjarlægu slóðum
var ekki eingöngu dans á rós-
um, og áður en mörg ár liðu,
voru menn farnir að veigra sér
við því að flytiast til þessarar
nýlendu. Því var það, að franska
stjórnin ákvað árið 1673, að
neyða fólk til að flytjast þang-
að. Um 12 þúsund manns. —
Verztu úrþvætti úr hinu þétt-
býla franska þjóðfélagi, svo sem
vændiskonur af götum Parísar,
óheiðarlegir umrenningar, mis-
sendismenn ýmiskonar, svo og
pólitískir andstæðingar kóngs-
ins voru gripnir og fluttir
hlekkjaðir til skips. En eftir
mánaðarlanga ferð með þessum
flutningaskipum, náði þetta ó-
__________________ JANÚAR
gæfusama fólk til Guyana, solt-
ið og þjakað af hinum ótrúleg-
ustu þjáningum á ferðalaginu.
En þegar til Guyana kom, and-
aðist flest þetta fólk, að stuttum
tíma liðnum. Ýmist varð það
fyrir eitruðum örvum villi-
manna, eða hitasóttin varð því
að fjörtjóni. í frönsku stjórnar-
byltingunni voru um 600 af
fylgismönum konungs fluttir
nauðugir til Guyana. Að vísu
sluppu þessir menn á þann hátt
undan hinni blóðugu fallöxi
heima í Frakklandi, en Guyana
vann verk fallaxarinnar jafn
fullkomlega, enda var farið að
nefna þetta land „þurru fallöx-
ina“ manna á meðal.
Þegar hópur þessara manna
kom til Cayenne, sem er höfuð-
borgin í Frönsku Guyana, var
tekið á móti þeim með orðun-
um: „Ykkur hefir nú verið sökkt
í gröfina,“ og brátt voru hinir
frönsku lýðveldissinnar á-
hyggjulausir vegna þessara
manna, sem margir hverjir
höfðu ekkert til saka unnið,
annað en vera af aðalsættum.
Einn hinn furðulegasti þátt-
ur í allri sögu þessarar saka-
mannanýlendu, hófst þegar bar-
ón Millius kom fram með tillögu
um það, árið 1823, að gera Guy-
36