Bergmál - 05.01.1954, Page 39
1954
ana að betrunar-þjóðfélagi saka-
manna.
Fjöldi vændiskvenna var tek-
inn höndum og þær giftar nauð-
ugar afbrotamönnum nýlend-
unnar. Hugmynd hins góðhjart-
aða baróns var sú, að þessu fólki
gæfist þar með tækifæri til að
byrja nýtt og betra líf, sem erfið
lífsbarátta átti að skapa þvi,
jafnframt sem það yrði að nýt-
um borgurum í hinu nýja þjóð-
félagi, en það urðu aðeins sára-
fáir, sem höfðu náð því marki,
að aðhyllast og samlagast betri
kjörum og lifa mannsæmandi
lífi áður en það féll fyrir ljá
dauðans.
Eftir þessa ömurlegu tilraun
vöknuðu frönsk yfirvöld loks til
meðvitundar um það, að brott-
flutningur sakamanna til þess-
arar nýlendu væri siðuðu þjóð-
félagi ósamboðið. Var þá farið
4að flytja sakamenn frá Frakk-
landi til Nýju-Kaledoníu, þar
sem loftslag og aðrar aðstæður
voru miklum mun mildari og
betri. Þarna þótti föngunum
líða of vel, svo að 1883 var enn
á ný farið að flytja sakamenn
til Frönsku Guyana.
Dreyfus-málaferlin gerðu þó
fyrst þessa sakamannanýlendu
heimskunna. — Dreyfus var
-------------------- Bergmál
dæmdur árið 1895 fyrir njósn-
ir. Var hann sakaður um að
hafa gloprað hernaðarlegu
leyndarmáli í hendurnar á óvin-
veittu ríki. Eftir að hann hafði
verið sviptur offurstatign, var
hann dæmdur til dvalar á
Djöflaeyjunni, en það er sá hluti
Frönsku Guyana, sem einkum
var notaður, sem fangabúðir
pólitískra afbrotamanna.
Brátt fór að bera á efasemd-
um um það, hvort hann væri
raunverulega sekur. Franski
skáldjöfurinn Emile Zola ritaði
hina hvassyrtu ákæru sína,
„J’accuse“ („Ég ákæri“) í þeim
tilgangi, að hreinsa Dreyfus af
öllum grun, en yfirstjórn
franska hersins reyndi eftir
megni að þagga málið niður,
meðal annars gegn um áhrif
hins óstjómlega gyðingahaturs,
sem þá flæddi yfir Frakkland,
og það liðu því enn fjögur og
hálft ár, áður en Dreyfus var
fluttur heim á ný, frá Djöfla-
eyjunni, veikur og máttfarinn.
Jafnvel þótt þá þætti fullvíst,
að drottinsvik þau, sem hann
hafði verið ákærður fyrir, hefðu
verið framin af öðrum frönsk-
um majór, sem hét Esterhazy,
var Dreyfus ekki sýknaður, en
útleg'ðardómi hans breytt í 10
ára þrælkunarvinnu. Síðar var
37