Bergmál - 05.01.1954, Side 40

Bergmál - 05.01.1954, Side 40
B E R G M Á L------------------ hann þó sýknaður og gerður að majór og jafnframt sæmdur riddarakrossi Heiðursfylkingar- innar frönsku. Andstaðan gegn honum, innan hersins hélzt þó eftir sem áður og tveim árum síðar baðst hann lausnar. Þau ár, sem hann átti ólifuð, var hann mjög einmana, bitur í skapi og vinalaus. Á Djöflaeyj- unni stendur ennþá kofinn, sem hann bjó í, öll hin ömurlegu út- legðarár sín og við dyrnar stendur trébekkur, sem hann sat á á kvöldin og starði í átt- ina til Frakklands, sem hann elskaði af heilum hug, þrátt fyr- ir allt. Danski rithöfundurinn Aage Krarup Nielsen, hefir skrásett bók, sem heitir: „Helvítið hand- an hafsins“, og er það frásögn dansks manns, sem dvaldist nokkur ár á Djöflaeyjunni með- al franskra sakamanna. En hann var dæmdur til dvalar þar, eftir að hafa reynt að gerast liðhlaupi úr frönsku Útlendingahersveit- inni. Lýsir hann á átakanlegan hátt, hversu grimmd, spilling og vesælmennska einkenndi lífið í þessari nýlendu. Við komuna til Guyana voru fangarnir flokkaðir og sendir í ___________________ JANÚAR hinar ýmsu sakamáladeildir. Hinir meinlausustu voru látnir afplána sekt sína við erfiðis- vinnu á meginlandinu, en verstu afbrotamennirnir voru sendir til tugthúsvistar á Djöflaeyju, Royal-eyju, eða St. Joseps-eyju. Síðastnefnda eyjan hafði sér- stöðu að því leyti, að þar hafði verið reist geðveikrahæli, þar sem geðsjúkir fangar urðu að hýrast til dauðadags. Og jafnvel hinir þykku múrar þessa „hæl- is“ gátu ekki kæft öskur og vein „sjúklinganna11, sem urðu öðr- um föngum til ábendingar um það, að til væru ömurlegri kjör, en þau sem þeir áttu við að búa. Þessi fyrrverandi danski fangi segir einnig frá ýmsum glæpa- mönnum, sem þarna voru sam- ankomnir. Eitt hið mesta úr- þvætti var maður að nafni Heinrich Christ, sem upphaflega hafði verið meðlimur í pólsk- um glæpamannaflokki, sem óð uppi í Frakklandi með ránum og gripdeildum. Líkami hans var allur þakinn tattóveruðu klámi og klúryrðum og á enni sér hafði hann látið tattóvera kjörorð sín: „Enginn guð, eng- inn húsbóndi — allt fyrir ást- ina“. Og hann hafði úr nógum vændiskonum að velja, sem 38

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.