Bergmál - 05.01.1954, Page 41

Bergmál - 05.01.1954, Page 41
Bergmál 1 9 5 4 ---------------------- dvöldust þarna bæði á meðal fanganna og gæslumannanna. Hann var að lokum gripinn, er hann gerði tilraun til að flýja, og sagt var, að hann hefði orðið að eyða æfidögunum, sem eftir voru, múraður fastur við cem- entsblokk í sóðalegum og dimm- um klefa. Eitt af því ámælisverðasta, sem Frakkarnir bera ábyrgð á, í sambandi við þessa nýlendu sína, er vegarlagning frá höf- uðborginni Cayenne til St. Laurent. En sú leið er um 150 kílómetrar um frumskóga og fen. Vegurinn átti að heita „Ný- lenduvegur númer 1“, en hefir aldrei verið fullgerður og nefn- ist því á síðari árum aðeins „Vegur númer 0“, eða rétt og slétt „La route“. Leiðin. — Byrjað var á þessu verki á síðari helmingi átjándu aldar og eft- ir 50 ára vinnu var aðeins búið að fullgera um 24 kílómetra af þessum vegi, og hafði sá spotti kostað líf 24 þúsund fanga. Aðeins örfáum hefir tekist að flýja á öllum þeim árum, sem fangar hafa verið í haldi á Djöflaeyju. Einn hinna fáu, sem hafði um víðáttumikla frumskóga og fen, en þar hafa fjöldi flótta- manna tínt lífinu, við að reyna að komast undan. Ein nhinna fáu, sem hafði heppnina með sér, var Englend- ingurinn Eddie Guerin. Hann rændi upphæð, sem nemur um tveimur og hálfri milljón ís- lenzkra króna í skrifstofu Ame- ricar Express Company í París, en var handsamaður af frönsku lögreglunni og dæmdur til æfi- langrar dvalar á Djöflaeyjunni. Framkoma hans þar reyndist í alla staði til fyrirmyndar og því var hann fluttur af eyjunni til meginlandsins. Þar gafst honum tækifæri til undankomu. Fór hann fyrst yfir Marconi- fljótið og brauzt því næst gegn um frumskóginn 6000 kílómetra leið og var frjáls. Fangar, sem dæmdir hafa ver- ið til dvalar á Djöflaeyju um stundarsakir, hafa jafnan verið dæmdir til að dveljast æfilangt í Guyana að aflokinni dvöl í fangabúðunum, og því hafa svo fáir átt afturkvæmt til átthag- anna. Margir hverjir hafa orð- ið að búa við ennþá verri lífs- skilyrði eftir að þeir voru að nafninu til búnir að afplána sekt sína, jafnvel orðið að svelta langtímum saman. Árangurinn af nýlendupóli- 39

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.