Bergmál - 05.01.1954, Qupperneq 49
B E R G M Á L
1 9 5 4 ----------------------.
SKRÍTLUR
Fórstu til spákonunnar?
Já.
Vissi hún nokkuð?
Eitthvað er hún glúrin — að minnsta
kosti sá hún strax að vissara væri að
láta mig borga fyrirfram.
★
„Er húsbóndinn heima?“ spurði
gesíurinn, sem hringt hafði dyrabjöll-
unni.
„Já,“ svaraði frúin.
„Ágætt,“ sagði komumaður, „hann
skuldar mér nefnilega peninga."
„Mér þykir þér vera bjartsýnn,"
sagði frúin, „að halda að hann. væri
heima, ef hann ætti einhverja pen-
inga.“
★
Presturinn hafði komið því til leið-
ar, að nýr vegur var lagður um sókn
hans. Dag nokkurn mætti hann svo
lækninum á nýja veginum. „Góðan
dag, prestur minn,“ sagði læknirinn,
brúarinnar yfir Forth-fjörðinn.
Það voru ekki liðin tvö ár síðan
hann hafði kropið á kné frammi
fyrir Viktoríu drottningu og
hún slegið hann til riddara.
Þegar brúin hans brast og
hvarf í hafið, hrapaði jafnframt
heimur hans til grunna. Hann
fékk taugaáfall og dó nokkrum
mánuðum síðar.
Tay-brúin var endurreist
„þetta er vænti ég ekki vegurinn til
himnaríkis, eða hvað?“
Presturinn svaraði: „Vart mun
nokkrum detta það í hug, eftir að hafa
séð þig fara eftir honum.“
★
A veitingahúsi: „Þjónn! Gjörið svo
vel og færið mér hníf.“
„Afsakið, herra minn. Ég hélt að ég
hefði fært yður hníf rétt áðan.“
„Já, það er alveg rétt, en hann situr
bara fastur í buffinu."
★
Atvinnuveitandinn: Gaman hefði ég
af því, ef þú gæfir mér einhverntíma
tilefni til að veita þér viðurkenningu
fyrir vel unnin störf, Jón minn.
★
„Ég hef veitt því athygli,“ sagði
gamli maðurinn, „að þið ungu menn-
irnir nú á dögum virðist blátt áfram
skíthræddir við að gifta ykkur. — En
það get ég sagt ykkur, að ekki vissi ég
hvað það var að vera hræddur, fyrr
en eftir að ég gifti mig.“
eða öllu heldur byggð ný brú
yfir Tay-fjörðinn, 60 metrum
innar í firðinum. Sú brú var
vígð hinn 12. júní árið 1887 og
hefir staðið óhögguð og traust
til þessa dags. Af þeirri brú má
enn í dag sjá leyfar gömlu brú-
arinnar á botni fjarðarins, vaxn-
ar þangi og þara. Og minna þær
enn í dag á hina hræðilegu ó-
veðursnótt, er þetta slys varð
rétt eftir jólin fyrir 74 árum síð-
an. ★
47