Bergmál - 05.01.1954, Síða 55

Bergmál - 05.01.1954, Síða 55
1 95 4 ------------------------ Ég vil ekkert fremur, en einmitt dvelja hér áfram hjá ykkur. En ég hefi engan rétt til þess. Við Stefán elskuðum ekki hvort annað, þegar hann dó. Við höfðum ákveðið að skilja, jafn- skjótt og barnið væri fætt.“ Honum brá ónotalega, enda þótt hann hefði haft óljósan grun um eitthvað þessu líkt. Eitthvað, sem j afnvel Madeleine hafði ekki gert sér ljóst, þótt næm væri. „Mér þykir vænt um, að þú sagðir mér frá þessu,“ sagði hann seinlega og án þess að horfast í augu við tengdadóttur sína. „Getum við ekki látið þetta vera leyndarmál okkar á milli, þú og ég?“ Hún kinkaði kolli og brosti angurblítt til hans. Þeim fannst skyndilega, sem þau hefðu færst nær hvort öðru. Þau urðu bæði í sameiningu að hlífa Madeleine. Síðari hluta dags sátu þær Cara og Madeline oft tvær sam- an inni í stofu og ræddu um Stefán. Að vísu var það einkum Madeleine, sem talaði um Stef- án, þegar hann var barn. Lítill hnokki. Cara sat þá álút yfir handavinnu sinni og hlustaði. Öðru hverju fann hún þá til dá- lítillar viðkvæmni í brjósti sér. ------------------- Bergmál Ekki gagnvart Stefáni, heldur gagnvart syni sínum, sem einn- ig var sonur Stefáns. Móðurtil- finningar mínar eru að vakna, hugsaði hún þá, og hún gladd- ist yfir því. Þessar eftirmiðdagsstundir með Madeleine urðu ungu kon- unni smátt og smátt unaðsstund- ir. Cara var að vakna til nýs lífs. Er hún hlustaði á Madeleine tala um Stefán með allri sinni óeigingjörnu ást og þolinmæði, hurfu hinar síðustu samveru- stundir smám saman í móðu fjarlægðarinnar og hættu að vera aðalatriði. En ýmislegt frá fyrstu hamingjudögum þeirra fór nú að rifjast upp og koma í stað þess er miður mátti fara. Svo þegar Cara fór í göngu- ferðir með Brad og varð að svara ýmsum spurningum hans varðandi hið ógæfusama hjóna- band sitt, þá fór hún að kenna samvizkubits. „Ég vil ...“ sagði hún skyndilega dag nokkurn, hátt og ákveðið, en þagnaði svo jafnskjótt aftur. „Hvað ætlaðir þú að segja?“ spurði Brad vingj arnlega. „Ég vil aðeins minnast hins fegursta og bezta frá samveru- stundum okkar Stefáns,“ sagði hún, „en reyna að gleyma öllu því, sem leiðinlegt var.og illt. 53

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.