Bergmál - 05.01.1954, Side 56
B E R G M Á L------------------
Ég vil ekki að sonur minn fái
nokkru sinni að vita hvernig
sambúð foreldra hans var.“
Brad lagði handlegginn yfir
axlir hennar, og þrýsti henni
hlýlega að sér.
„Þú segir syni þínum aðeins
frá því fegursta og bezta, vegna
þess, að þú gleymir öllu hinu,
sem miður fór.“
Nokkrum kvöldum eftir þetta
kom Brad að konu sinni sitjandi
uppi í rúminu, og var Madeleine
óvenjulega þreytuleg og beygð.
„Þú hefir gengíð fram af þér í
dag,“ sagði hann og settist á
rúmið hjá henni.
Nei,‘“ svaraði Madeleine
og horfði dreymnum augum út
í loftið. „Nú líður mér vel, því
að nú hefi ég lokið því, sem mér
bar að gera. Ég ól einn son, fóstr-
aði hann við brióst mér og lærði
að þekkja hann. Ég þekkti alla
hans bresti, en ég barðist fyrir
því, að enginn sæi þá nema ég
ein. Vissulega spillti ég honum
með eftirlæti. Og ég vanrækti
einn mikilsverðan þátt uppeld-
isins. Ég vanrækti, að búa hann
undir hjónabandið. Hann var
enginn fyrirmyndar eiginmað-
ur, Brad.“
Brad tók viðbragð. — „Hefir
Cara sagt það?“ spurði hann.
__________________ JANÚAR
Madeline hristi höfuðið.
„Nei,“ svaraði hún. „Cara
hefir ekki gefið það í skyn, með
einu einasta orði. En mér varð
það ljóst, jafnskjótt og ég sá
hana. Mér var líka órótt, er
Stefán minntist á hjónaband
sitt. Það var líkast því, að hann
fyrirlíiti kanuna sána. ,En nú'
hefi ég barist hans vegna, í síð-
asta sinn. Ég hefi gefið tengda-
dóttur okkar Stefán á ný, í feg-
urri og betri mynd, og leyst
hana af klafa haturs og gremju.
Mér hefir fundist, sem væri ég
að tæta sundur mitt eigið hjarta,
með hverri endurminningu, sem
ég hefi grafið fram, hverri smá-
mynd af honum, sem ég hefi
mótað í huga hennar. En er ég
hélt henni í örmum mér, og hún
grét af sorg, þá vissi ég að mér
hafði heppnast.“
Hún þerraði augu sín og Brad
fannst hann standa nær konu
sinni, en nokkru sinni fyrr í hjú-
skapartíð þeirra. Hann gat ekk-
ert sagt. Þess var heldur engin
þörf.
Þegar Madeleine talaði á ný,
var rödd hennar styrk og örugg.
,,Ég gerði það fyrir son Stefáns,“
sagði hún. „Það er gott fyrir
státinn strák að vita það, er
hann kemst til vits og ára, að
54