Bergmál - 05.01.1954, Page 58
SKRITLUSÍÐA
Ég get fullvissað þig um að hann er
mesti púki, hann talar meira að segja
um helvxti eins og hann væri fæddur
þar og uppalinn.
★
Hann greip um þvala, granna hönd
stúlkunnar á svipaðan hátt og þegar
api hrifsar til sín banana.
★
Einn mann þekki ég, sem sjaldan
nennir að hreyfa sig mikið, og þó
hleypur hann á hverjum morgni, —
yfir fyrirsagnir blaðanna.
★
Blessaður vertu ekki að elta ólar
við hana Siggu, hún er ósigrandi með
öllu, eins og tyggigúmmí.
★
Á veggnum í kaffihúsi einu í Skot-
landi var skilti með þessari áletrun:
— Lánstraust hafa aðeins þeir, sem
komnir eru yfir áttrætt og eru í fylgd
með foreldrum sínum. —
★
Verkfræði-prófessorinn: „Getið þér
sagt mér hvert er hið kraftmesta vatns
fall, sem vér mennirnir þekkjum?"
Nemandinn: „Konu-tár.“
★
Samkomustjórinn stóð upp og
mælti: „Hér er kominn Jón Jónsson,
sem verður eini ræðumaður okkar í
kvöld, öll hin atriðin á kvöldvökunni
eru skemmtiatriði.“
Leikarinn Rex Harrison sagði í við-
tali við vin sinn, að hann myndi ekki
hafa gifzt konunni sinni, nema af því
hann vissi að hún væri sú eina rétta.
„Og hvernig gaztu verið viss um
það?“ spurði vinurinn.
„Hún sagði það sjálf,“ svaraði Rex.
★
Tveir leikarar voru að stæra sig af
því hvor við annan, hve slyngir þeir
væru í Shakespeare-rullum.
„Þegar ég lék dauða-senu Hamlets
um daginn," sagði annar þeirra, „þá
táruðust allar konur í salnum og leið
yfir sumar.“
„Hvað er það,“ svaraði hinn, „síðast
þegar ég lék sömu senu, þá sat líf-
tryggingarfulltrúi á fremsta bekk, og
hann reis samstundis á fætur, skund-
aði heim til konu minnar og greiddi
henni líftryggingarfé mitt.“
★
„Hættu þessum óhljóðum og handa-
pati,“ sagði tannlæknirinn við sjúk-
ling sinn, „ég hef ekki einu sinni
snert tönnina ennþá."
„Veit það,“ emjaði sjúklingurinn,
„en þér standið á líkþorninu á litlu
tánni á mér.“
★
Stúdentinn nýútskrifaði (standandi
á götuhorni í stórborg): „Frú mín
góð, ekki mynduð þér vilja gefa löm-
uðum vesaling nokkrar krónur?"
Góðhjartaða frúin: „Hvernig eruð
þér lamaður, ungi maður?“
Stúdentinn: „Fjárhagslega.“
56