Bergmál - 05.01.1954, Blaðsíða 59
Upphaf nýrrar
framhaltlssögu:
yöKU-
DRAUMAR
Skáldsaga
eftir
Peter Burnham
Hún var útundan.
Fáir mundu hafa haldið því fram, að Biddy Mason væri falleg
stúlka. En, ef að einhverjum hefði dottið í hug að segja það, þá
mundi hún vafalaust hafa brosað þunglyndislega, fallega brosinu
sínu. Hún hefði jafnvel getað átt það til að gretta sig frammi fyrir
speglinum, en síðan snúist á hæli með glampa í augunum og segja
eitthvað á þá leið, að þá væri öðr'u máli að gegna með hana Maureen,
yngri systir hennar — það væri nú stúlka, sem lítandi væri á.
Biddy var aldrei kölluð annað en Biddy, aldrei Bridget, nema af
gamla Simon Fletcher.
Biddy var tuttugu og eins árs.
Maureen var nítján ára, ákveðin og fljótráð, jafnvel svo, að
Biddy hafði stundum áhyggjur af því hve ófeimin hún var að láta
skoðanir sínar í ljósi.
Sá maður var ekki til í allri Henbury-borg, sem ekki mundi gjörla
eftir bílslysinu neðan við Tapley Hill fyrir þrem árum síðan, en
57