Bergmál - 01.04.1954, Qupperneq 48
Svipmyndir úr lífi innfæddra svertingja og aðfluttra
Evrópumanna undir hitabeltissól Afríku.
Nígería -- Cameroun -- Gullströndin
Villy E. Risör.
Framkvæmdastjóri danskrar timb-
urverzlunar, sem heitir Villy E. Risör
flaug suður til Afríku fyrir rúmu ári
síðan í þágu fyrirtækis síns. „Ég var
aðeins trémaður á ferð,“ segir hann,
„en ég tíndi blóm á leíð minni og hug-
ur minn stóð opinn fyrir öllu nýju og
framandi." — Árangurinn varð bók
ein lítil, sem hlaut nafnið „Afríka tré-
mannsins.“ Og hefir hún af gagnrýn-
endum verið talin ein af beztu Afríku-
lýsingar bókum dönskum. — Hér fara
á eftir örfá sýnishorn úr þessari
skemmtilegu bók:
Við vorum þrem mínútum á
eftir áætlun. Það var ljóta sleif-
arlagið, eða hvað? Leiðin var
rúmlega 7400 kílómetrar, og
slíka smáspotta ætti maður þó
að geta lagt að baki, án þess að
verða óstundvís. Dyrnar að far-
þegarúmi flugvélarinnar opn-
uðust og inn kom kolsvartur
herramaður með sótthreinsunar
sprautu í hendinni. D.D.T. guf-
urnar fylla andrúmsloftið. Dyr-
unum er lokað andartak, en svo
fær maður loks leyfi til þess að
ganga út. Hitinn hertekur mann
samstundis, svo að í fyrstu kem-
ur manni það á óvart og hálf-
lamast.
Maður flýtir sér að afklæðast
yfirhöfn og jakka og jafnframt
rífa af sér slipsið og samt virð-
ist maður enn vera kappklædd-
ur í samanburði við heimamenn,
hvíta sem svarta, er aðeins eru
klæddir stuttbuxum. (Afsakið!
Ég hefi þegar fengið að vita, að
það er ekki talað hér um hvíta
menn og svarta eða negra, held-
ur: Afríkumenn og Evrópu-
menn. Aftur á, móti er ekki
minnst á Ameríkana hér. —
Afríkumaður veit ekki að til sé
nein manntegund, sem kallast
Ameríkani. Vesalings Ameríka.
Hér er aðeins til Evrópa og Ev-
rópumaður, hinn heimurinn og
hinn kynflokkurinn.)
Afríkumennirnir virðast flest-
allir glaðir og ánægðir með til-
veruna hér. Þeir eru ótrúlega
hrifnir af börnum, og ég hefi
séð marga Afríkumenn gleðjast
46