Bergmál - 01.04.1954, Qupperneq 54
Apríl
Bergmál -------------------
Jafnvel þótt henni hafi kannski
ekki verið það ljóst sjálfri. Og
það var þetta, sem Clip ekki
þoldi. Hann kærði sig kollóótt-
an um það, þótt hún bæri út
slúðursögur um hann. En ást
hennar gat hann ekk-i þolað.
Þess vegna var hann óður, og
uppvægur. „Þessi gamla norn er
ástfangin af mér,“ sagði hann
stundum.
Clip sat inni í rakarastofu
Jóa Kolbs og var að láta klippa
sig. Á laugardaginn. Hann var
ekki fyrir neinum, horfði aðeins
út um gluggann forvitnislega á
fólkið, sem gekk fram hjá.
Þá gekk ungfrú Pfister fram hjá.
Stuttu síðar kom hún til baka
og gekk á ný fram hjá gluggan-
um, hnakkakert með vandlæt-
ingarsvip. — Ég segi aðeins
hlutlaust frá því sem gerðist, til
að sýna fram á það, að Clip
verðskuldar ekki að vera for-
dæmdur opinberlega. Ungfrú
Pfister gekk, sem sagt, fram hjá
og aftur til baka, síðan gekk
hún á ný sömu leið og fyrr,
fram hjá glugganum og enn til
baka. Hún tilbað hann með reig-
ingssvip og þóttafullu látbragði.
Þá var það, sem Clip tapaði
stjórninni á hægri fæti sínum.
Rauk upp úr rakarastólnum,
þaut út á götu og greip um
handlegginn á ungfrú Pfister.
Hann var auðvitað hálf-óður,
en ungfrú Pfister orgaði af
hrifningu. Clip jós sér yfir hanat
og hún jós sér yfir hann. Það
var líkast því er hjón rífast, sem
gift hafa verið í sextán ár og
ausa loks af skálum reiði sinn-
ar, öllu, sem þau vissu hvort
um annað.
Clip froðufelldi af ósköpum.
Hann var altekinn viðbjóði og
vanlíðan, en jafnframt leið hon-
um illa vegna þess að honum
fannst sér vera sýnd lítilsvirð-
ing og smán.
Ungfrú Pfister sat skyndilega
flötum beinum á gangstéttinni
utan við rakarastofuna, um há-
bjartan daginn. Allir íbúar borg-
arinnar streymdu að, til þess að
sjá, hvaða afbrot hefði verið
framið, og hún fékkst ekki til
að standa á fætur.
Clip var svo skapvondur, að
hann vissi ekki hvað hann átti
að taka sér fyrir hendur. Ef að
ungfrú Pfister hefði staðið á
fætur, þá hefði hann sparkað í
hana aftur, en hún stóð ekki á
fætur.
En nú fóru nokkrir kirkju-
legir vinir hennar að blanda sér
í ástamál hennar, með þeim
árangri, að Clip Rye lenti í
tugthúsinu, og þar situr hann