Bergmál - 01.09.1957, Qupperneq 6
Bergmál -----------------------
að -þið hefðuð fengið jólatékk-
ana ykkar, þið eruð hrædd við
Vance.“
Howard titraði frá hvirfli til
ilja af niðurbældri reiði, en hélt
þó stjórn á sjálfum sér að mestu
og gekk af stað fram í anddyrið
með fröken Ospensky. Skyndi-
lega sneri gamla ballettdans-
konan sér við og í svip hennar
sá ég eitthvað nýtt sem ég hafði
aldrei séð þar fyrr, eitthvað sem
benti til virðuleika og andlegs
jafnvægis og kom mér það á
óvart.
„Ég elska Howard,“ sagði
hún. „Hann elskar mig. Það er
hlægilegt, en það er þó ekki eins
hlægilegt eins og að elska aftur-
göngu. Ég vissi það að þú ætl-
aðir að koma okkur á kaldan
klaka ef . .. . “
Frú Porter greip fram í fyrir
henni. „Þið hafið hlegið að mér
á bak, fyrir það sem þið hafið
kallað rómantískar grillur eða
gjörninga og ég er því viss um
að þið getið ekki haft neitt á
móti þeim raunveruleika og
staðreyndum, sem þú virðist dá
svo mjög.“
Fröken Ospensky tók um hönd
Howards. „Komdu,“ sagði hún
blíðlega. ,,Þetta er það sem við
--------------- Septem'ber
hefðum átt að gera fyrir mörg-
um árum.“ Og þau gengu sam-
hliða út úr stofunni.
„Ungfrú Stone, viljið þér
gjöra svo vel og rétta ungfrú
Billings hennar gjöf.“ Frú Port-
er sagði þetta rólega og hægt,
en rödd hennar var líkust stáli.
Hendur mínar titruðu er ég
rétti stórt umslag í áttina til frú
Billings, út úr því dró hún sam-
anbrotið bréf sem hún las þegar.
Ég sá að hún hafði ekki fyrr
lokið lestrinum en hún las það
yfir aftur, en leit því næst upp
döprum, næstum slokknuðum
augum. „Þetta er alveg ókiljan-
legt.“
Frú Porter svaraðið engu, en
frú Billings sneri sér að mér
eins og ég gæti ef til vill gefið
einhverja skýringu. „Ég skil
þetta ekki,“ sagði hún. „í þessu
bréfi er mér gefin heimild til
þess að búa að Headlands þang-
að til í febrúar og það er með
undirskrift Marian Porter.“
Frú Billings hló hátt og hvellt.
„Hvað á svona glens að þýða,
Marían? Þeir, sem ég samdi við
um söluna á Headlands, gáfu
mér orð sín fyrir því, að þeir
mundu leyfa mér að dveljast
þar, það sem ég ætti eftir ólifað,
og þetta voru fulltrúar bezta og
4