Bergmál - 01.09.1957, Qupperneq 13
1 9 5 7 -------------------------
brýðissemi, en smátt og smátt
skildist mér að þær kenndir
ristu miklu dýpra. Ég reyndi að
Ieiða Sylviu fyrir sjónir hvernig
hún væri, en Sylvia dáði frú
Porter þangað til Hann
hristi höfuðið og ég sá sársauka-
drætti í andliti hans.
„Hvað ætlaðir þú að segja um
Sylviu Fain?“ spurði ég.
„Ég held,“ sagði hann, „að frú
Porter hljóti að hafa drepið
hana.“ .
„Ó, — nei!“
„Ég veit ekki hvers vegna,
Susan.“ Hann sló krepptum
hnefa hægri handar í vinstri
lófann. „Mig vantar einhvern
hlekk í þetta allt saman til að
geta skilið það. í fyrstu hélt ég
að frú Porter hlyti að hafa gert
eða sagt eitthvað, sem hefði
rekið Sylviu til þess að fremja
sjálfsmorð og mér fannst að ef
til vill væri ég að einhverju
Ieyti samsekur, en í kvöld
þá breyttir þú þessu öllu þegar
þú sagðir mér í símann það sem
frú Porter hafði sagt þér um
stefnumót mitt við Sylviu. Eng-
inn gat hafa vitað um það, frú
Porter hlýtur að hafa hlustað á
samtal okkar í hinum símanum
niðri þegar Sylvia hringdi til
mín. Fáeinum mínútum síðar
------------------ B E R G M Á L
sendi frú Porter mig' í vissum
erindum niður í borgina og hún
vissi vel að ég gat ekki verið
komin aftur fyrir klukkan átta,
og þó munaði minnstu að hún
ætlaði sér nógan tíma. Klukkan
hálf níu kom ég aftur til baka
og þá var Sylvia ekki lengur
hér.“
„En hví í ósköpunum skvldi
hún vilja gera slíka hluti sem
þetta, jafnvel þó að maður taki
tillit til þess að hún sé eitthvað
sálsjúk.“
„Ég veit það ekki, ég skil það
ekki,“ sagði hann aftur. „í sím-
ann fór Sylvi'a eitthvað að tala
um ljósmynd og eitthvað um
það að frú Porter hefði stungið
einhvern í gegn með pappírs-
hníf.“
„Ljósmyndin,“ hrópaði ég og
horfði á Bill eins og til þess að
biðja hann að fyrirgefa mér. „Ó,
elsku vinur minn, reyndu að
skilja mig. Ég fann þessa ljós-
mynd og ég þorði ekki að af-
henda þér hana, það er mynd af
frú Porter á brúðkaupsdaginn,
en það einkennilega við þessa
mynd var það, að andlit brúð-
gumans var tætt og rispað og
rifið.“
Eitt andartak starði Bill á
mig, en bví næst sagði hann
11