Bergmál - 01.09.1957, Qupperneq 18
Sönn saga úr síðari heimsstyrjöldinni:
UNDRAVERÐ HETJA
Eftir Indro Montanelli.
Saga mín byrjar þann dag í
marz-mánuði 1944 þegar hans
hátign, Della Rovere herforingi,
einkavinur og samstarfsmaður
Badoglio marskálks og tækni-
legur ráðunautur Alexanders
herforingja, var fluttur í San
Vittore fangelsið og settur í
klefa sem var gegnt mínum
klefa. ítalska leynihreyfingin
var að reyna, þegar þetta var,
að kljúfa straum þýzkra vara-
liðsmanna til vígvallanna á
Suður-Ítalíu. Ég komst að því
að hershöfðinginn hafði verið
handtekinn af Þjóðverjum ein-
hvers staðar á Norður-Ítalíu
rétt eftir að hann hafði verið
settur á land úr kafbáti vestur-
veldanna, en hann hafði átt að
taka að sér stjórn ýmsra fram-
kvæmda sem skæruliðar höfðu
með höndum. Ég undraðist og
hreiíst af höfðinglegri og tigin-
mannlegri framkomu hans, eng-
um gat blandazt hugur um, að
þar fór aðalsmaður, jafnvel
Franz, hinn ómannúðlegri þýzki
yfirfangavörður þessa fangelsis,
heilsaði herforingjanum að her-
mannasið. Af öllum þeim „játn-
ingaverksmiðjum“ á Ítalíu, sem
Þjóðverjar starfræktu á þessum
tíma var San Vittore fangelsið
illræmdast. ítalskir skæruliðar,
sem handteknir höfðu verið og
stóðust allar venjulegar yfir-
heyrslur annars staðar, voru
sendir til kúgunarmeðferðar í
San Vittore og þar tók Gestapo-
foringinn Múller við þessum
föngum og hafði hann með sér
16