Bergmál - 01.09.1957, Qupperneq 19
19 57
B E R G M Á L
heilan flokk útvalinna SS-
manna, en þeim tókst venjulega
að neyða þær upplýsingar upp
úr fórnardýrinu, er þeir óskuðu
eftir, jafnvel hinum allra harð-
svíruðustu, með aðferðum sem
eru frægar orðnar í annálum
hinna hugvitssömustu pynting-
araðferða.
Það voru liðnir sex mánuðir
frá því að ég hafði verið
handtekinn. Ég hafði verið yfir-
heyrður nokkrum sinnum og ég
var bæði úttaugaður og kjark-
laus orðinn. Stundum lá ég og
velti því fyrir mér hversu lengi
ég gæti haldið út enn. Svo gerð-
ist það einn daginn, mér til
hinnar mestu undrunar að Cer-
aso, einn af ítölsku fangavörð-
unum, opnaði dyrnar að klefa
mínum og sagði mér að Della
Rovere yfirhershöfðingi óskaði
eftir því að fá að tala við mig.
Dyrnar að klefa hershöfð-
ingjans voru ólæstar eins og þær
höfðu jafnan verið og það sem
meira var og undraverðara, var,
að hann hafði rúm í klefa sínum,
þótt allir aðrir fangar yrðu að
sofa á berum fjölunum. Hann
heilsaði mér hæversklega, vel
klæddur og framúrskarandi
snyrtilegur, með einglyrni fyrir
hægra auga. „Komið þér sælir,
kapteinn Montanelli, ég hafði
heyrt þess getið þegar áður en
ég sté hér á land, að þér væruð
hér. Ríkisstjórn hans hátignar
hefur vakandi áhuga á örlögum
yðar. Vér erum öruggir um það
jaínvel þegar þér fallið fyrir
skotum þýzkrar aftökuherdeild-
ar, að þér munið uppfylla skyldu
yðar, frumskyldu yðar sem yfir-
maður í hernum. Gjörið þér svo
vel og fáið yður sæti.“ Þá fyrst
varð mér það ljóst að ég hafði
allan tímann sem hann talaði
staðið stífur frammi fyrir hon-
um með hælana saman og hend-
urnar niður með síðunum.
„Líf okkar yfirmannanna í
hernum er mjög tilviljunum
háð,“ hélt hann áfram. „Foringi
í hernum er, ef svo má segja,
brúðgumi Heljargyðjunnar —
Novio de la Muerte — segja
Spánverjarnir.11 Hann þagnaði
og fægði einglyrnið sitt með
snjóhvítum vasaklútnum og mér
flaug í hug í svipinn að nöfn
manna lýstu oft einkar vel per-
sónuleika þess sem bæri það.
Della Rovere þýðir; „af eikar-
stofni“ og hér frammi fyrir mér
var vissulega maður úr harðviði.
„Þeir hafa þegar kveðið upp
dóm yfir mér,“ hélt hann áfram,
„en hvað um yður?“
17