Bergmál - 01.09.1957, Side 20

Bergmál - 01.09.1957, Side 20
B E R G M Á L „Ekki ennþá, yðar hátign," svaraði ég næstum því í afsök- unartón. „Það kemur að því,“ sagði hann. Þjóðverjarnir eru óþreyt- andi í elju sinni, þegar þeir eiga von á einhverri játningu eða geta gert sér von um játningu, en þeir eru iíka oft riddaralegir gagnvart þeim eða í mati sínu á þeim, sem þeir vita að munu neita að játa nokkuð. Þér hafið ekki talað. Vel gert. Og það þýðir að þér munuð verða heiðr- aður með því að verða skotinn í brjóstið en ekki í bakið. Ég hvet yður til að verða staðfastur í framtíðinni, en ef þér skylduð verða beittur þessum pyntingar- aðferðum þá leyfi ég mér að leggja til að þér nefnið aðeins mitt nafn. — Ég er ekki með þessu að draga í efa óraskanleg- an siðferðisstyrk yðar, en það eru takmörk f jnir líkamlegu þoli allra. — Segið þeim, að hvað sem þér gerðuð og allt sem þér hafið gert, hafið þér gert samkvæmt mínum fyrirskipunum. Segið mér annars, fyrir hvað þér eruð ásakaður? Ég sagði honum allt af létta og dró ekkert undan, hans há- tign hlustaði á mig eins og --------------- September kaþólskur prestur á skriftabarn sitt. Við og við kinkaði hann kolli eins og í viðurkenningar- skyni. „Yðar aðstaða er eins ljós eins og mín,“ sagði hann er ég hafði lokið frásögninni. „Við vorum báðir að framkvæma skipanir yfirboðara okkar, hin eina skylda sem eftir er að uppfylla fyrir okkur er að deyja í bar- daga á orustuvelli heiðursins, það ætti að vera okkur auðvelt, að deyja með sæmd.“ Þegar Ceraso var að læsa mig inni í fangaklefa mínum á eftir, þá grátbað ég hann um að senda mér rakara daginn eftir og þetta kvöld braut ég buxurnar mínar saman og reyndi að strjúka þær sem bezt ég gat á brúninni á gluggakistunni áður en ég lagð- ist endilangur á plankann og sofnaði. Næstu dagana sá ég marga af föngunum vera leidda í heim- sókn inn í fangaklefa yfirhers- höfðingjans og er þeir komu þaðan út aftur þá virtust þeir allir ganga beinni í baki en þeir höfðu áður verið og var kjark- leysissvipurinn stórum farinn að minnka. Hávaði og óregla í okkar ein- angruðu deild minnkaði stórum, 18

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.