Bergmál - 01.09.1957, Side 27

Bergmál - 01.09.1957, Side 27
1 9 5 7 ------------------------ Bertoni var reiðubúinn að semja við þá. Hann bauðst til að gera eins og þeir fóru fram á, en í staðinn krafðist hann þess, að fá sérstaka meðferð í fang- elsinu og jafnframt að honum yrði tryggt það, að honum yrði sleppt fljótlega aftur. Þjóðverj- arnir fundu upp nafnið Della Rovere og' sögu þess hershöfð- ingja og kenndu honum hlut- verkið. Þá bað hann um að sér yrði veittur nokkur tími til að vinna traust þeirra fórnardýra, sem hann seinna átti að svíkja og honum voru veittir nokkrir dag- ar til slíkt undirbúnings, en Ber- toni var slungnari en þeir vissu: hann var ákveðinn í því að svíkja aðeins Þjóðverjana. Og þá varð hin undraverða persónuklofning. Jafnframt því sem Bertoni fór að leika hlut- verk yfirhershöfðingjans Della Rovere, þá varð hann í raun og veru Della Rovere, og hann tók sér fyrir hendur hlutverk, sem var sannkallað ofurmennishlut- verk, en það var að gera San Vittore fangelsið óvinnandi vígi öllum játningaaðferðum og fangana nógu styrka til að mæta örlögum sínum. Og með aðsóps- mikilli framkomu sinni, reisn, -------------------B E R G M Á L hugrekki og trúnaðartrausti skapaði hann nýjan virkuleik og persónuleg verðmæti þessum vesalings mönnum, sem þarna voru innilokaðir. En að lokum vissi hann að skeið hans var á enda runnið. Múller Gestapoforingi varð ó- þolinmóðari með hverjum deg- inum sem leið. Hvers vegna komu ekki neinar játningar fram ennþá? Og þegar ,,Della Rovere“ tal- aði við mig þennan síðasta dag er hann var í klefa sínum í fangelsinu og kallaði fangavörð- inn til vitnis um það sem hann sagði, þá vissi hann að öllu var lokið og' að þetta var eina leiðin til þess að umheimurinn fengi að heyra sögu hans. Og þetta var líka eina leiðin til þess að Ítalía fengi að heyra það, að hann hefði ekki brugðist á verðinum. 22. júní 1945 er ár var liðið frá blóðbaðinu í Fossoli, þá stóð ég í dómkirkjunni í Milano og horfði á kardinálann í borginni leggja blessun guðs yfir kistur hetjanna frá Fossoli. Kardínálinn vissi hvers lík var d kistunni sem merkt var „Della Rovere", hann vissi líka að enginn var betur eða með meiri rétti að þeim titli kominn: „Yfirhershöfðingi", 25

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.