Bergmál - 01.09.1957, Page 32
B E R G M Á I, -----------------
ur og losaði sig úr faðmlögum
hennar. Hann skildi hana eftir
þar sem hún lá í hnipri á gólf-
inu við hliðina á stólnum, sem
hann hafði setið í. Hann fálmaði
sig áfram og gegn um forstof-
una, og út úr húsinu, án þess að
gefa sér 'tíma til að leita að hatt-
inum sínum. Svo lokaði hann
útidyrunum eins hljóðlega og
honum var mögulegt.
Himininn var orðinn heiðrík-
ur og tunglið skein glaðlega.
Vegurinn var blautur og það
heyrðist hvernig vatnið rann
eftir skurðum og ræsum. Hutton
óð beint af augum og skeytti ekki
um, þótt hann blotnaði.
Þvílíkt hjartaskerandi kjök-
ur. M'eðaumkun hans og iðrun
var þó blandin reiði: hvers vegna
tók hún ekki* á hlutunum eins
og hann; án alvöru og tára? Já,
að vísu, en hann vissi þá jafn-
vel fyrirfram að þannig myndi
hún aldrei snúast við þessu; hún
kunni ekki að leika þann leik;
það hafði hann vitað en samt
haldið áfram. Hvað hafði hún
verið að segja um höfuðskepn-
urnar og ástríðurnar. Eitthvað
margþvæit en satt, satt.
Hún var eins og svart, þrumu-
hlaðið ský og hann, eins og lít-
ill, skrýtinn Benjamín Franklin,
---------------— S F. P T F. M B E R
hafði sett sinn eldingaleiðara
beint inn að hjarta þessa þrumu-
valds. Og svo leyfði hann sér
að kvarta yfir því að þetta leik-
íang hans skyldi verða fyrir
eldingunni.
Hún var sennilega ennþá á
hnjánum við stólinn, grátandi.
En hvers vegna hafði hann
ekki haldið leiknum áfram.
Hvers vegna 'hafði ábyrgðar-
leysi 'hans nú allt í einu yfir-
gefið hann og skilið hann eftir
einan og allsgáðan í köldum
heimi. Engin svör bárust við
spurningum hans. Ein hugsun
var stöðug og yfirþyrmandi í
huga hans — hugsunin um að
flýja. Hann varð að forða sér
tafarlaust.
„Um hvað ertu að hugsa,
kiðlingur?11
„Ekkert.“
Svo var þögn. Hutton var
hreyfingarlaus, og hvíldi olnbog-
ana á handriðinu og hökuna í
höndum sér og horfði yfir Flor-
ence. Hann hafði leigt sér hús
uppi á hæð sunnan við borgina.
Frá garðinum gat hann virt fyr-
ir sér grænan, frjósaman dal-
inn, borgina litlu neðar og lit-
laust fjallið hinum megin:
Monte Mærells; og austanvert
30