Bergmál - 01.09.1957, Page 36
Bergmál ---------------------
niður og jafnframt af reikandi
skrefum framan við dyrnar, það
ískraði í hjörunum þegar annar
gamall maður kom inn í stofuna,
hann var ennþá bognari í baki,
ennþá hrukkóttari og að öllu
leyti ellilegri en hinn fyrr-
nefndi. Hann gekk við hækju.
t að sázt ekki í augu bans vegna
skuggans frá húfuderinu og
neðri vörin hékk eins og hálf-
máttlaus svo að skein í gular,
skemmdar tennurnar. Hann
gekk beina leið að ihægindastól
hinum megin við borðið, settist
þunglamalega niður og hóst-
aði. Maðurinn með visnu
höndina leit sem snöggvast á
komumanninn með auðsærri
andúð. Gamla konan virtist ekki
veita því neina athygli að hann
kom inn en hélt áfram að stara
inn í arineldinn.
„Já, ég sagði það, að það er á
yðar eigin ábyrgð,“ sagði mað-
urinn .með visnu höndina enn,
þegar hóstakviðunni linnti.
„Já, það er á mína eigin á-
byrgð,“ svaraði ég.
Maðurinn með derhúfuna virt-
ist nú fyrst veita því athygli að
ég væri nærstaddur og gaut til
mín hornauga eins og til að virða
mig fyrir sér. Ég sá eitt andar-
tak i augu hans, lítil en skær og
--------------- September
stingandi, svo fór hann að hósta
aftur og ræskja sig.
„Hvers vegna færðu þér ekki
drykk,“ sagði maðurinn með
visna handlegginn og ýtti bjór-
glasi til hans. Maðurinn með der-
húfuna hellti í glasið með titr-
andi hönd svo að þriðjungurinn
fór utan hjá og á borðið. Skuggi
hans féll á vegginn að baki hon-
um eins og afskræmt skrýmsli, á
meðan hann hellti í glasið og
drakk. Ég verð að játa það, að
ég hafði ekki búist við svo kyn-
legum íbúum í húsinu. í huga
mér er alltaf eitthvað óraunhæft
tengt elli'hrumleikanum, allir
mannlegir eiginleikar virðast
hverfa smátt og smátt hjá elli-
hrumu fólki og án þess að mað-
ur veiti iþví athygli dag frá degi.
Þessi þrjú gamalmenni gerðu
mér órótt í skapi með óeðlilegri
þögn sinni og fáskiptileika. Þau
sátu öll hokin og mér fannst aug-
ljóst að þau hefðu öll andúð á
mér og líka hvort á öðru; ef til
vill hefi ég líka verið óþarflega
næmur fyrir óþægilegum á-
hrifum þetta kvöld. Ég ákvað
að reyna að gleyma óljósum
fyrirboða í fari þeirra um eitt-
hvað ýkt og yfirnáttúrlegt uppi
á loftinu.
„Ef þér viljið visa mér upp í
34