Bergmál - 01.09.1957, Side 38
Bergmál ---------------------
eins og dökkir skuggar, sem
báru þarna við arineldinn; þau
störðu öll á mig yfir öxl sér og
virtist sem að væri áfergja í svip
þessara gamalmenna.
„Góða nótt,“ sagði ég og opn-
aði dyrnar.
„Ja, þetta er á yðar eigin á-
byrgð,“ sagði maðurinn með
visna handlegginn.
Ég skildi dyrnar eftir upp á
gátt þangað til kertið sem hann
hafði vísað mér á frammi á
ganginum var farið að loga
glatt og þá lokaði ég.
Ég hélt af stað eftir ganginum,
sem bergmálaði hvrt skref mitt.
Það setti að mér hroll vegna
kuldans og rakans þar.
Ég verð að játa það, að þessi
undarlega framkoma þriggja
gamalmenna, sem aðalsfrúin
hafði falið gæzlu kastalans og
hin eldgömlu, fornfálegu hús-
gögn í henbergi húsvarðarins,
sem þau höfðu safnað saman,
hafði allt saman haft undarleg
áhrif á mig þrátt fyrir tilraunir
mínar til þess að halda hugar-
farsjafnvægi. Þau virtust öll til-
heyra liðinni öld eða jafnvel
löngu liðnum öldum, þeim tím-
um er andar voru hræðilegir
og menn éttuðust vofur á hverju
leiti, þeim tímum er heilbrigð
-----------------S K P T F. M B E R
skynsemi var svo til óþekkt,
galdranornir og ýms fyrir.bæri
voru daglegt brauð og engurn
datt í hug að andmæla því að
draugar væru til. Þau eru raun-
verulega aðeins vofur, hugsaði
ég, það þarf ekki annað en að
líta á fatnað þeirra með úreltu
gamaldags sniði, húsgögnin og
skreytingarnar í herberginu
þeirra minntu einnig á drauga
og draugagang, vöktu í huga
manns minningar og frásagnir
um horfna menn, sem ganga
aftur. Og þessi gangur, sem ég
gekk um, var langur og
skuggalegur og mér fannst
vera raki á báðum veggj-
um; hann var sannarlega eins
eyðilegur og kuldalegur og
dauðs manns gröf. En loks tókst
mér að hrista af mér allar slík-
ar hugsanir og ná andlegu jafn-
vægi. Mér fannst gangurinn
aldrei ætla að taka enda, ég
fann dragsúg og það virtist vera
mikið ryk í öllum hornum á
gólfinu, kertaljósið flökti til og
frá og mér fannst ýmist að
skuggarnir hnipruðu sig saman
eða teygðu úr sér og titruðu til
og frá. Er ég gekk upp hring-
stigann, bergmálaði fótatak mitt
um allt og einn skuggi elti mig
upp stigann, annar flýði á und-
— 36 —