Bergmál - 01.09.1957, Qupperneq 47
1957
urminningu um það, um að ég
hafi reikað eða hlaupið fram og
aftur í myrkrinu og ég hef einnig
óljósa endurminningu um það,
að ég hafi fengið rokna högg á
ennið og svo hafi ég dottið; mér.
fannst það vera eilífðartími sem
ég hélt áfram að detta og detta
niður á við, svo fannst mér ég
gera örvæntingarfulla tilraun
til að koma fyrir mig fótunum
og það er það síðasta sem ég
man.
Þegar ég opnaði augun var
orðið bjart af degi. Það var
bundið og reifað höfuðið á mér
og maðurinn með visnu höndina
var að baða andlit mitt. Ég
horfði í kringum mig og reyndi
að muna hvað gerzt hafði, og
langur tími leið áður en ég gat
munað eftir nokkru. Ég leit til
hliðar út í 'horn á herberginu,
þar sat gamla konan, hún var
ekki lengur viðutan eins og mér
hafði virzt hún vera kvöldið
áður. Nú var hún ekki óttaleg í
mínum augum, þar sem hún stóð
og var að 'hella nokkrum með-
aladropum í glas, úr litlu, bláu
hylki. „Hvar er ég?“ spurði ég.
„Mér virðist, sem ég kannist við
ykkur, en mér er ómögulegt að
muna hver þið eruð.“
Þau sögðu mér þá allt af létta.
------------------ Bergmál
Ég' hlustaði á söguna af rauða
herberginu eins og maður sem
heyrir draugasögu í fyrsta skipti.
„Við fundum yður í dögun,“
sagði hann, „og það var blóðugt
enni yðar og varirnar líka.“
Ég undraðist það, að mér
skyldi nokkurn tíma hafa geðj-
ast illa að honum. Þau þrjú,
þessi gömlu hjú virtust alveg
eins og gamalt fólk, núna við
dagsbirtuna. Gamli maðurinn,
sem verið -hafði með derhúfuna
sat og laut höfði eins og maður
sem er sofnaður sitjandi.
Smátt og smátt fór endur-
minningin að koma til mín á ný.
„Jæj.a, trúið þér því nú,“ sagði
gamli maðurinn með visnu
höndina, „að það sé drauga-
gangur í þessu herbergi?“ Hann
talaði ekki lengur eins og mað-
ur, sem er að reyna að hrinda
frá sér óviðkomandi manni,
’heldur eins og sá sem er að reyna
að hugga eða hughreysta vin
sinn. „Og þér hafið séð draug-
inn, en við, sem höfum verið
hérna alla okkar ævi, höfum
aldrei séð hann, vegna þess að
við höfum aldrei þorað að vera
þar inni, segið okkur, er það í
raun og veru gamli jarlinn, sem
9“
45