Bergmál - 01.09.1957, Page 50
B E R G M Á L ----------------------------------- S E P T E M B E R
að spyrja hana hvort vér mættum vonast eftir rómantik. En þeirri
spurningu svaraði hún svo, að vér mættum vonast eftir hverju
sem væri hennar vegna, en hún gæti fullvissað oss um að hún væri
alltof önnum kafin við æfingar, til þess að geta hugsað um brúð-
kaup. Og svo bætti hún við, að ef til vill gœti hún frætt oss á
spennandi fréttum áður en langt um liði.
Jill sat hreyfingarlaus og gladdist yfir því, að dagblaðið skýldi
andliti hennar fyrir Judy. Og er hún lagði blaðið frá sér einni eða
tveim mínútum síðar, hafði hún þegar jafnað sig svo að hún gat
þvingað sjálfa sig til að brosa til Judy, og talað án þess nokkurs
óstyrks gætti í röddinni:
„Eg held að blaðamenn séu forvitnustu menn í heimi.“
Judy kinkaði kolli. — „Já, en manstu ekki að ég spáði þessu eim
mitt? Og hún viðurkennir sama sem, að tilgáta blaðamannsins sé
rétt, eða finnst þér það ekki? Finnst þér ekki gaman að því að
ástarævintýri þeirra skyldi einmitt byrja hér á Broad Meadows?“
„En Sandra hefir í raun og veru meint það, með orðum sínum,
þá vona ég að þau verði hamingjusöm,“ sagði Jill rólega. „En nú
verð ég víst að fara og líta eftir einum af sjúklingum mínum. Ég
sé ekki fram úr því sem ég hefi að gera.“
„Jæja, þá það, — við sjáumst síðar,“ sagði Judy og fór. En jafn-
skjótt og dyrnar lokuðust að baki henni, greip Jill blaðið á ný og
las aftur alla slúðurgreinina frá upphafi til enda. „Spennandi
fréttir.“ Það var þá ekki aðeins það, að hann hefði „hlaupið á sig“
í betta skipti.
Jill minntist þess nú og hún hafði oft hugsað um það hvort
Victor myndi ekki í raun og veru vera ástfanginn af þessum fagra
og fræga sjúklingi sínum. Og reyndar virtist henni nú, að maður,
sem var jafn önnum kafinn og umsetinn og Victor Carrington,
hlyti að vera ákaflega ástfanginn, er hann gæfi sér tíma til að
vitja svo oft samvista við Söndru.
Sandra hafði þá gengið með sigur af hólmi í lokin.
Og skyndilega vissi hún hvað hún átti að gera. Það var tvennt,
sem hún ætlaði að gera. Fyrst og fremst að eyða helginni hjá Lady
Amanda, og í boði hennar. Hún varð að fá að vita allt um þetta
48