Bergmál - 01.09.1957, Page 52
B E R G M Á L -—------------—------------------ SEPTEMBER
hennar og eftir augnaráðinu að dæma virtist hún vera úhamingju-
söm, var það mögulegt að þessu væri þannig varið, var hjarta
barnsins að bresta vegna .. .?
Hún hrökk upp við það að Jill kom aftur inn í herbergið; næstum
samtímis kom Price með tevagninn.
„Og yður fellur alltaf jafnvel á sjúkrahúsinu,“ sagði Lady Am-
anda.
„Já, allir eru svo góðir þar,“ svaraði Jill. „Reyndar er ég að fara
á brott frá Broad Meadows í næsta mánuði, ég ætla að fara til
Afríku og starfa á einkasjúkrahúsi rétt fyrir utan Salisbury.“
„Ætlið þér að yfirgefa England? en kæra barn, hvað er það sem
að . ..?“
Jill sagði henni frá þeim Ken og Judy og að hún hefði mikla
möguleika til þess að fá þarna afbragðs stöðu, miklu betri heldur
en hún ætti völ á heima í Englandi, reyndar er það nú líka mitt
álit að maður hafi ekki illt af því að sjá sig svolítið um og ég hef
alltaf haft mikinn áhuga fyrir Afríku, ég er viss um að það er
dásamlegt að fá að sjá sig um í nýjum heimshlutum."
„Já, ég geri ráð fyrir að það sé ekki nema eðlilegt að ung og
dugleg stúlka hugsi þannig,“ sagði Lady Amanda eilítið dapurlega,
enda þótt hún hefði ekki þekkt Jill lengi þá var henni á vissan hátt
farið að þykja vænt um hana og alltaf öðru hverju fannst henni
að hún bæri á einhvern hátt ábyrgð á þessari ungu stúlku. Að
sjálfsögðu var það mjög óraunhæf hugsun, því að Jill var áreið-
anlega nógu gömul til að vita hvað hún vildi og ekki yrði hún
þarna innan um eintóma ókunnuga, hún yrði meðal vina sinna og
fengi að halda áfram því verki sem að henni þótti vænzt um.
En ef til vill var það samt eitthvað annað, sem fékk þessa ungu
stúlku til þess að takast á hendur þessa löngu ferð.
Þegar gamla konan stóð á fætur til þess að fara að ná í dúk sem
hún var að sauma, varð henni af tilviljun litið á ljósmyndina af
Victor Carrington sem stóð á hillunni þar sem hún hafði alltaf
staðið og nú var hún rétt aftan við stólinn sem Jill sat í.
Hún minntist þess að eitt sinn fyrir nokkru síðan hafði hún ein-
mitt séð í speglinum ofan við hilluna er Jill tók tók myndina niður
50