Bergmál - 01.09.1957, Qupperneq 58
S E P T F. M B E R
B E R G M Á L
skipti, flaug Söndru það skyndilega í hug að hún þyrfti að bregða
sér skyndilega heim til sín, til þess að máta nýja skó sem áttu að
sendast heim til hennar seinnipartinn þennan dag, en hún lofaði
að verða komin aftur áður en að kvöldverðurinn væri framreiddur
og þegar Jill kom aftur niður í stóru setustofuna, þá var Lady Am-
anda ekki þar inni, en Sandra var einmitt að koma inn úr dyrunum
frá því að skreppa heim og hún hafði meira að segja haft tíma til að
hafa fataskipti líka.
„Jæja, Jill,“ sagði Sandra glaðlega. „Ég hef haft töluvert sam-
vizkubit af því að ég hef aldri skrifað yður, en þér vitið nú hvernig
ég er, ég fæ skrifkrampa þó ég skrifi ekki nema nokkrar línur.“
Jill hló. „Þá ættuð þér að kaupa yður ritvél.“
„Þá myndi ég ekki geta skrifað eina einustu línu, en vitið þér
hvað ég hugsaði til yðar á sunnudaginn? Ég óskaði þess að þér
væruð komin til mín. Ég flaug til Parísar og heimsótti Errol um
helgina, reyndar vissi ég ekki að hann væri þar og ég rakst á hann
af tilviljun, en við héldum áfram að kíta allan liðlangan daginn.
Ég veit að hann fyrirgefur mér aldrei.“
Sandra stóð á fætur, tók undir handlegginn á Jill og leiddi hana
út að glugganum. „Mér þykir vænt um að við fáum að vera hérna
tvær út.af fyrir okkur nokkrar mínútur, Jill, þér eruð svo róleg.“
,.Róleg,“ hugsaði Jill. Sandra hélt áfram og talaði hratt.
„Ég hafði ekki kjark til a ðsegja honum frá því að ég hefði skrif-
að undir hjá Boronoff, auðvitað hefði ég átt að segja honum það, þér
skiljið, hann heldur það ennþá að ég ætli að dansa í París í haust,
enda þótt við höfum ekki skrifað undir neinn samning og nú nagar
samvizkan mig.“
Jill leit snögglega til hennar, hún hafði verið svo bundin við
rugsunina um það, að Sandra ætlaði að giftast Victor að hún hafði
gjörsamlega gleymt Lord Errol.
..Segið mér eitt í trúnaði," sagði Jill. „Elskið þér Errol lávarð?“
Sandra stóð eitt andartak hrreyfingarlaus og steinþagði.
„Já, það held ég,“ viðurkenndi hún að lokum. „Hann getur sært
mig meira heldur en nokkur annar og hann hefur oft og mörgum
sinnum gert það, en ef til vill hefði ég getað fyrirgefið honum það
56