Bergmál - 01.09.1957, Blaðsíða 59
1 9 5 7 --------------------------------——-------— B E R G M Á L
allt saman ef að hann hfði ekki komið svo hranalega fram á meðan
ég var veik og ef hann hefði ekki tekið það sem gefinn hlut að
hann gæti reiknað með því að ég gerði allt sem honum geðjaðist i
íramtíðinni.“
Jæja, svo að Sandra gat þá líka verið beizk í skapi. Jill brá er
hún heyrði takmarkalaust vonleysis í rödd ungu stúlkunnar.
„En ég held að hann elski yður,“ sagði hún. „Ó, ég mundi ekki
vilja giftast honum hvað sem í boði væri og ég mundi ekki vilja að
þér giftust honum Sandra, ef að ég gæti einbverju ráðið um það, en
þetta lítur náttúrlega allt. öðru vísi út ef að þér í raun og veru
elskið hann.“
„Já, þetta er alveg' satt,“ sagði Sandra og varð snögglega áköf.
„Hann er svo eigingjarn en þó er eitthvað við hann sem að heldur
mér fastri, töfrar mig. Þegar hann hélt að ég myndi aldrei verða
fær um að dansa framar, þá var hann alls ekki leiður niín vegna,
bara sín vegna, svo þegar mér fór að batna, þá tók hann það sem
gefið að allt myndi falla í ljúfa löð eins og áður var á milli okkar,
en nú skal hann fá að setja ofan, hann skal ekki geta reiknað með
mér svo öruggleg hér eftir. Innst í hjarta mínu þá sé ég eftir því að
hafa skrifað undir samninginn við Boronoff, en ég varð á einhvern
hátt að vernda og verja sjálfa mig.“
„Munið þér eftir því þegar þér komuð hingað inn í þessa stofu í
íylgd með Victor og þið komuð að okkur óvörum og við vorum hér
tvö ein?“
„Já,“ sagði Jill svolítið stíf.
Erroll hafði nær lagt mig að fótum sér í það skiptið, hann var að
enda við að biðja mín og ég var að því komin að játast honum, það
hefði ég ef til vill gert ef þið hefðuð ekki komið á réttu andartaki
til að hindra það ,það var því að þakka að þið komuð okkur að ó-
vörum að ég bjargaði mér í það skiptið og nú losna ég við að vera
háð áhrifum hans næstu tvö árin.“
„Og svo hvað?“ spurði Jill.
Sandra yppti öxlum. „Ég veit ekki, ef hann þá óskar eftir því að
koma inn í líf mitt, þá verður það að vera með öðrum skilyrðum en
Framhald og niðurlag sögunnar í nœsta hefti.
57