Bergmál - 01.09.1957, Side 63

Bergmál - 01.09.1957, Side 63
B E R G M Á L 1 9 57 ------------------------- hún. Hutton hafði þá boðizt til að sækja það sjálfur. Hann hafði farið einn. Ungfrú Spence — æ, hann mundi eftir storminum og hvítu, spenntu andlitinu! Hræði- legt! — Ungfrú Spence stað- festi frásögn Klöru og bætti því við, að Hutton hefði komið með meðalið í glasi, en ekki í flösk- unni. Hutton var ekki lengur reiður. Hann varð mjög miður sín, skelfdur. Þetta var of furðulegt til að hægt værí að taka það al- varlega, og samt var þessi mar- tröð staðreynd — og áþreifan- leg. M’Nab hafði oft séð þau kyss- ast. Hann hafði ékið þeim dag- inn sem frú Hutton dó. Hann sá spegilmynd þeirra í framrúð- unni og stundum sá hann þau líka útundan sér. Réttarrannsókninni var frest- að. Það kvöld var Doris með höfuðverk. Þegar hann kom inn til hennar eftir kvöldmatinn var hún grátandi. „Hvað er að,“ hann settist á rúmstokk hennar og strauk hár hennar. Langan tíma svaraði rún engu og hann hélt áfram að strjúka hár hennar sjálfkrafa — næstum óafvitandi. Annað slagið beygði hann sig meira að segja niður og kyssti nakta öxl hennar. En hann hafði nóg á sinni könnu til að hugsa um. Hvað hafði gerzt? Hvernig stóð á því, að þessar heimskulegu gróusögur voru allt í einu orðnar að sannleika. Emily hafði dáið af arsénikeitrun. Það var furðu- legt, fráleitt. Eðlilegt orsaka- samband hlutanna var rofið og' hann var ofurseldur ringulreið. Hvað hafði gerzt og hvað mundi gerast? Hann var skyndilega truflaður í hugsunum sínum. „Það er mér að kenna — það er mér að kenna,“ kjökraði Doris. „Ég héfði ekki átt að elska þig; ég hefði ekki átt að láta þig elska mig. Hvers vegna fæddist ég í þennan heim?“ Hutton sagði ekki neitt, en horfði þegjandi á stúlkuna þar sem hún lá í örvæntingu sinni. „Ef þeir gera þér eitthvað, drep ég mig.“ Hún settist upp, hélt honum frá sér með beinum handlegg og horfði á hann með eins konar grimmd, eins og hún ætti ekki oftar eftir að líta hann augum. „Ég elska þig, elska þig, elska þig.“ Hún dró hann að sér án mótstöðu af hans hendi, greip fast um hann og þrýsti sér að honum. „Ég vissi ekki, kiðling- 61

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.