Goðasteinn - 01.09.2009, Síða 81
Goðasteinn 2009
Árið eftir var Guðmundur biskup á ferð í Reykjadal í Þingeyjasýslu. Fór
biskup á Einarsstaði og þaðan á Helgastaði og ætlaði að vígja þar kirkju á
Jónsmessu um haustið (29. ágúst 1220).“ Þar börðust biskupsmenn við lið undir
forustu Arnórs Tumasonar. Lauk þeim átökum með því að biskupsmenn gáfust
upp og fóru í kirkju. Þá kom þar að ísleifur Hallsson er bjó að Þverá í Laxárdal.
„ísleifur bauð biskupi heim með sér. Fór hann og með honum. En þeir, er eftir
voru, gengu til griða. Gaf Arnór grið Eyjólfi Kárssyni. ...“ (íslendinga saga)
Sumarið 1221 fór Arnór Tumason til Noregs en skipaði áður „... mannafon'áð
sitt í Skagafirði Þórarni, syni Jóns Sigmundarsonar. Hann var settur niður á
Víðimýri og skyldi gæta héraðs fyrir mönnum Guðmundar biskups ...“ Urn
veturinn „tók Arnór Tumason sótt og andaðist á jólum. En Arndís, kona hans, var
þar í Nóregi og börn þeirra tvö, Kolbeinn og Arnbjörg. Var Kolbeinn þá þrettán
ára, en hún sex“ (íslendinga saga). Arnbjörg Arnórsdóttir varð síðar eiginkona
Orækju Snorrasonar Sturlusonar.
Sumarið 1224 „kom skip í Hvítá ... Þákom út og Kolbeinn Arnórsson fimmtán
vetra ... Árni óreiða [Magnússon Ámundasonar], Kygri-Björn og margir aðrir
íslenzkir menn. ... Fór [Kolbeinn] um haustið norður til Eyjafjarðar og var um
veturinn með Sighvati, mági sínum.“
En um vorið var „... honum gert bú í Ási í Hegranesi, og gerðist hann skjótt
ofsamaður mikill og vænn til höfðingja. Sighvatur réð mestu með honum, meðan
hann var ungur.“ (íslendinga saga)
Samkvæmt Konungsannál kom Guðmundur Arason biskup lit árið 1226 og
hafði hann dvalið í einangrun í Niðarósi frá 1222. Biskup tók það til bragðs að
senda prest sinn, Ketil, til Rómar að afla lausnarbréfs frá páfa. í annálnum kemur
einnig fram að biskup var árið 1227 í Hvammi í Dölum með Þórði Sturlusyni sem
var bróðir Sighvats og Snorra og faðir Sturlu sagnaritara. Þórður tók við Þórs-
nesingagoðorði og bjó á Stað í Staðarsveit en flutti á föðurleifð sína í Hvammi
árið 1225. Hann tók ekki þátt í deilum Sturlungaldar og dó á sóttarsæng kominn á
áttræðisaldur.
„Guðmundur byskup heima að Hólum“, segir Konungsannál 1228, 1229 og
1230 en 1231 segir: Guðmundur byskup í Öxarfirði. „Guðmundur byskup var
heima á Hólum, þar til er Skagfirðingar ráku hann brott að ráði Kolbeins unga af
staðnum. Fór hann þá norður um sveitir ... Var þá fjölmennt með honum og
heldur óspakt lið.“
Á Skinnastaði í Öxarfirði kom biskup „að jólaföstu með lið sitt og var þar mjög
svo til langaföstu. Voru þá upp gengin föngin, en bændur uggðu þá, að setið
myndi á kosti þeirra, og kuruðu illa.“ (íslendinga saga)
Hélt Guðmundur biskup þá vestur yfir Jökulsá, allt vestur í Hrísey og þaðan til
Ólafsfjarðar þar sem biskup gisti á Þóroddsstöðum. Er þess getið í íslendinga sögu
79