Goðasteinn - 01.09.2009, Síða 128
Goðasteinn 2009
gekk í barnaskólann á Strönd á Rangárvöllum og nam síðar einn vetur við
Kvennaskóla Árnýjar Filippusdóttur á Flverabökkum í Ölfusi.
Guðbjörg giftist 11. desember 1943 Pétri Einarssyni verkamanni frá
Vestri-Geldingalæk á Rangárvöllum. Flann lést í ársbyrjun 1985. Foreldrar
hans voru hjónin Ingunn Stefánsdóttir húsfreyja og rjómabústýra og Einar
Jónsson bóndi og alþingismaður. Guðbjörg og Pétur stofnuðu heimili á
Grettisgötu 67 í Reykjavík og bjuggu í Reykjavík allan sinn búskap, síðast í
Stórholti 24. Stóð hún fyrir heimili þeirra af mikilli reisn og myndarskap,
stundaði saumaskap heima og hafði mörg járn í þeim eldi, saumaði m.a.
skátabúninga um árabil og gat sér gott orð af verkum sínum. Um nokkurra ára
skeið vann hún einnig utan heimilis, síðast í eldhúsi Landspítalans. Guðbjörg
var dugnaðarkona og myndarleg í verkum sínum, hjálpsöm, næm, skynsöm og
skilningsrík og greiddi götu margra er leituðu á náðir hennar með vanda sinn.
Börn þeirra Guðbjargar og Péturs eru fimm. Elstur var Oddur Vilberg
löggiltur endurskoðandi sem lést 1995. Ekkja hans er Ragna Kristín Jónsdóttir.
Dætur þeirra eru Guðbjörg og Sigurrós Jóna. Næstelst er Ingunn banka-
starfsmaður í Ferndale í Washingtonríki í Bandaríkjunum, gift John William-
son Sim landamæraverði frá Skotlandi. Synir þeirra eru Pétur Johnson og Ian.
Þriðji í röðinni er Einar húsasmíðameistari í Kópavogi, kvæntur Ingibjörgu
Guðrúnu Magnúsdóttur bókara. Börn þeirra eru Ágústa, Pétur Óli og Helgi
Páll. Næstyngstur barna þeirra Guðbjargar og Péturs er Loftur bólstrari í
Kópavogi, kvæntur Dröfn Eyjólfsdóttur bókara. Börn þeiiTa eru Arnar Már,
Ingunn og Heiður. Yngst er svo Linda Björg kennari í Garðabæ, gift Jóhanni
Unnsteinssyni löggiltum endurskoðanda. Synir þeirra eru Unnsteinn og Bjarki.
Allur þessi hópur skipaði veigamikinn sess í lífi Guðbjargar og hún fylgdist
með vexti og viðfangsefnum hvers og eins af áhuga og umhyggjusemi.
Barnabörnin juku nýjum þætti í sterka tryggðataug hennar sem samofin var ætt
hennar og uppruna og æskustöðvar hennar eystra voru henni alltaf jafnkærar.
Þangað sótti hún hvert sumar og þar átti fjölskyldan griðastaðinn Sælukot sem
reistur var í landi Heiðar upp úr 1970.
Guðbjörg hóf sambúð með Ingibirni Hallbertssyni frá Veiðileysu á
Ströndum árið 1989. Áttu þau fyrst heima í Stórholti 24 en frá árinu 2001
126