Goðasteinn - 01.09.2009, Page 153
Goðasteinn 2009
Páll Óskar Hafliðason, Búð
Páll Óskar Hafliðason fæddist í Búð í Þykkvabæ 29.
nóvember 1921. Foreldrar hans voru Hafliði
Guðmundsson, fæddur 30. september 1886, látinn 18.
mars 1980 og Guðrún Daníelsdóttir, fædd 10. febrúar
1890, látin 25. nóvember 1971. Páll var næstelstur úr
hópi sex systkina. Þau eru Kristjón bóndi á Tjörn í
Þykkvabæ, f. 6.3. 1919, hann er látinn, Guðrún
handavinnukennari, húsmóðir í Reykjavík, f. 1.12.
1923, hún er látin, Hákon bíla- og vélaviðgerða-
rmaður, f. 11.6. 1925, bjó lengst af í Háteig í Þykkva-
bæ, hann er látinn, Ólafía Guðný skrifstofumaður í Reykjavík, f. 28.3. 1927,
hún er látin, og Daníel Sigursteinn bóndi í Búð II, f. 29.7. 1935.
Páll ól allan sinn aldur í Þykkvabænum, utan er hann var við nám í
Hólaskóla en hann útskrifaðist þaðan búfræðingur 1941. Hann starfaði sem
bóndi alla sína tíð og bjó ásamt bróður sínum og foreldrum félagsbúi meðan
foreldrar hans lifðu. Á sínum yngri árum vann hann við vatnamælingar ásamt
Sigurjóni Rist. Hinn 28. nóvember 1970 kvæntist Páll Steinunni Adolfsdóttur.
Sonur þeirra er Hafliði, f. 1971. Steinunn, sem var ekkja, átti fyrir þau Harald,
Georg, Adolf og Aðalheiði. Páll og Steinunn byggðu nýtt hús í Búð og bjuggu
þar til 2008. Páll lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi 15. janúar
2008. Útför Páls var gerð að hans ósk í kyrrþey frá Kotstrandakirkju 24.
janúar 2008.
Sr. Guðbjörg Arnardóttir, Odda
151