Stjörnur - 10.01.1950, Qupperneq 6
$hfr(eg Jemple
hefur skilið við mann sinn.
ÞAÐ SKIPTIR fljótt í tvö horn
með hjónabandshamingjuna í
Hollywood. Mikið var nú um
dýrðir er Shirley Temple og John
Agar giftu sig.
Nokkru síðar spurði blaðakona
Shirley hvort hún væri ekki hrif-
in af því, að eiga að leika á móti
Gary Cooper, en mynd með þeim
var þá í undirbúningi. Shirley leit
undrandi og hneyksluð á spyrj-
andann og sagði:
— Eins og það sé nokkuð fyrir
mig, sem er gift John Ag'ar.
En ekki munu þau hafa verið
lengi í hjónabandinu, er snurður
komu á þráðinn. John Agar sagði
við vini sína: — Það er ekkert
hægt að skemmta sér með
Shirley, hún er svo saklaus og
mórölsk, hún vill ekki smakka
áfengi. Ég held hún ætli alltaf að
verða sama smástelpan.
Við réttarhöldin sem fram fóru
eftir amerískri venju, er þau
skildu, Shirley og John, sagði
frúin að eiginmaðurinn hefði
fljótt farið að skemmta sér einn
í næturklúbbum og öðrum
skemmtistöðum. Og þegar hann
hafi komið drukkinn heim,
hafi hann verið allur kámugur
eftir varalit þeirra kvenna, sem
hann hafi skemmt sér með, og
jafnvel þegar Shirley gekk með
dóttur þeirra, var hann í slíku
kvennastússi. Shirley sagðist hafa
tekið þetta svo nærri sér, að einu
sinni hefði hún í örvinglun sinni
ákveðið að fyrirfara sér. Hún
sagðist hafa tekið bíl sinn og
ákveðið að aka honum út af veg-
inum á stað einum, þar sem hyl-
dýpi var undir. En þegar hún
kom út í svalt næturloftið róað-
ist hún og ók í þess stað til lækn-
is síns.
Mikill fjöldi var í réttarsalnum
og sveiuðu konur og karlar, er
John Agar fór að reyna að bera
hönd fyrir höfuð sér.
Hann var dæmdur til að greiða
með barni þeirra 100 dollara á
mánuði. Til framfærslu sjálfrar
sín fór Shirley ekki fram á græn-
an eyri.
6 STJÖRNUR