Stjörnur - 10.01.1950, Side 11

Stjörnur - 10.01.1950, Side 11
eru senur, sem varhugaverðar verða að teljast, en slíka mynd er ekki hægt að banna. Að þessu leyti kann að gæta nokkurs ó- samræmis, en það ber að athuga, að það sem er saklaust eða mein- lítið í einni mynd, vegna heildar- anda hennar og verkunar, getur verið hættulegt í annari. Heyrt hef ég fólk hneykslast á því, að myndir þar sem leikend- ur eru mjög fáklæddir, skuli leyfðar börnum. En því er til að svara, að hreinum er allt hreint, og slíkt snertir ekki svo mjög börn og unglinga, og þessháttar myndir eru yfirleitt ekkert eftir- sóttar af börnum. Fyrir nokkrum árum voru hafðar sérstakar sýningar fyrir börn, en nú er þessu fyrir löngu hætt og kenna bíóin því um að ekki sé hægt að fá neinar barna- myndir. Meðal annars þess vegna verður að gæta hér mikillar var- úðar um skoðun mynda almennt, og líklega er hvergi — nema þá í Svíþjóð — eins mikið og hér bannað af myndum til sýninga fyrir börn og unglinga. — Er það rétt að myndgæðun- um sé mjög að hraka í bíóunum hér. — Ekki veit ég hvað ég á að segja um það. Vegna gjaldeyris- skortsins nú hin síðari ár hefur innflutningur mynda verið miklu takmarkaðri en t. d. á stríðsárun- um, enda þótt bíóhúsunum hafi fjölgað. Góðu myndirnar eru yfir- leitt dýrari en léttmetið og því von þótt innflytjendur kvikmynd- anna freistist til þess að fá sem flestar myndir. Samt verð ég að segja það, að ótrúlega margar góðar myndir hafa verið sýndar hér síðustu mánuðina, einkum síðan myndir fóru að berast frá Evrópulöndunum. En því miður er reynslan sú, að aðsóknin að flestum beztu myndunum er miklu minni en að ameríska ruslinu. — Að lokum, sagði frú Aðal- björg, vil ég beina þessum orðum til foreldra: Leyfið börnum og unglingum ekki að fara í bíó og sjá hverja einustu mynd, sem sýnd er. Bíóferð einu sinni í viku eða tvisvar á mánuði er meir en nóg. ☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆ * * Hoagy Carmichael sá er leik- ur píanóleikarann í Bestu árin, er einnig kunnur jasslagatónsmiður, er eftir hann til fjöldi vinsælla danslaga, enda er hann einn af forustumönnum jasstónlistarinn- ar í Ameríku eins og hún birtist í nútímaformi. Nýlega hefur Hoagy skrifað ævisögu sína. Er það skemmtileg bók og er sagt margt spaugilegt frá lífi jasstón- listarmanna í Ameríku. STJÖRNUR 11

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.