Stjörnur - 10.01.1950, Blaðsíða 16

Stjörnur - 10.01.1950, Blaðsíða 16
ur endurtók sig. Síminn hringdi og, er Lísa greip tólið, heyrði hún hina sömu blæfögru rödd er söng ljóð og lag til enda. Síðan sagði söngvarinn: — Eruð þér ekki ánægð með þetta? Finnst yður virkilega ekki, að þetta sé gott lag? — Jú, hvíslaði Lísa. — Afsakið .... sagði maður- inn og var hraðmæltur .... Er þetta ekki .... — Nei, því miður. Þetta er bara ég .... Skiljið þér .... það er skakkt númer, alveg eins og í gær. — Nei, en hve það var gaman, svaraði maðurinn og reyndi að snúa öllu upp í glens. Og þér eruð ekkert reið við mig fyrir það að ég er alltaf að ónáða yður. — Nei sannarlega ekki. — Eg má til að skýra þetta fyr- ir yður. Eins og þér skiljið verður Vivianna ekki uppnæm fyrir smá- munum og þessvegna datt mér í hug að vekja athygli hennar á laginu mínu með því móti að syngja það fyrir hana í síma — formálalaust .... En meðal ann- ara orða hvað finnst yður um lagið? — Það er mjög hrífandi, flýtti Lísa sér að segja .... En hvað var þetta? Nú heyrðist aftur gamli þagnarsónninn í símanum. Hann hafði þó áreiðanlega ekki lagt tólið á sín megin, það hefði hún heyrt. — Halló, halló, kallaði hún. Ekkert svar. Hún lagði heyrnartólið á. Kannski hann myndi hringja aftur? En vissi hann þá númerið? Var það ekki aðeins tilviljun að hann hitti á hennar númer í þessi bæði skipti? Hún beið. Enginn hringdi. Þögn- in grúfði um ] .ana þung og myrk. Ef til vill hefur hann hringt frá almenningssíma og viðtalsbilinu verið lokið, það var aðeins skömm stund, sem fekkst fyrir tvo fimmeyringa. Ef til vill var þetta fátækur listamaður, sem háði bar- áttu fyrir tilveru sinni. Ef til vill bjó hann einhversstaðar í úthverf- unum og gat því ekki náð til Viviönnu með öðrum hætti en að hringja til hennar, rétt fyrir háttatímann. Ef til vill var tæki- færið í kvöld, á morgun gat það verið orðið of seint. Lísa greip kápuna sína og snar- aðist í hana. Hún hafði tekið á- kvörðun, eða réttara sagt, þegar hún stóð hálftíma síðar í dagstofu hinnar frægu söngkonu, varð henni ljóst ,að hún hafði tekið ákvörðun. Þangað hafði hún bor- ist eins og í leiðslu. — Hvað get ég gert fyrir yð- ur, fröken? Lísa vaknaði sem úr dvala, er hún heyrði þessi orð. Frammi fyrir henni stóð sjálf prímadonn- an Vivianna. Og Lísa heyrði eins og í draumi sjálfa sig segja: — Ég ætlaði bara að biðja yð- ur, sem getið gert hvaða lag sem 16 STJÖRNUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stjörnur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.