Stjörnur - 10.01.1950, Side 20

Stjörnur - 10.01.1950, Side 20
EITT KVÖLD er hún kom heim, örmagna eftir atvinnuleit dagsins, lá fyrir henni bréf. Hún greip það fegins hendi. Loks fékk hún þó svar við einhverju vinnu- tilboðinu, hugsaði hún. En gleði hennar dvínaði, er hún sá, að utanáskriftin var í skrifstofuna, þar sem hún hafði verið. Bréfið hafði síðan verið sent þaðan heim til hennar. Hvað gat þetta verið. Hún reif það upp. Aðgöngumiði á nýju Víviönnu-revyuna. Beztu kveðj- ur frá sjálfri leikkonunni. En var þetta þá ekki um seinan? Hafði bréfið ekki verið það lengi á leiðinni? Hún leit á dagsetning- una. Sýningin var í kvöld. Gat hún farið svona fyrirvaralaust og það á sjálfa frumsýninguna, þar sem fínasta fólk borgarinnar var saman komið? Og var bezti kjóll- inn hennar nógu góður? Hún varð að taka strax ákvörðun. Hún ákvað að fara. Hún leyfði sér ekki þann mun- að að taka einkabifreið og hún var svo óheppin að missa af strætisvagninum. Hún ákvað að ganga. Ef hún gengi hratt ætti hún að ná í tæka tíð. Leikhússalurinn var fullskip- aður og um leið og hún settist voru ljósin slökkt. Hún hafði flýtt sér svo mikið, að hún veitti því ekki athygli fyrr en nú, að henni hafði verið skipað til sætis í stúku, rétt hjá hljómsveitinni, meðal gesta leikhússins. Og við hlið hennar sat karlmaður í kjól- fötum.Hún sá ekki betur en að það væri hinn frægi og vinsæli dægurlagatónsmiður, Kurt Wi- berg, sem æskulýður bæjarins dáði og flestir þekktu. En hún mátti ekki vera að því að hugsa um sessunaut sinn og þá undarlegu tilviljun að hún skyldi sitja hér meðal heiðurs- gestanna. Tónaflóð orkestursins dundi yfir sahnn, og þegar í fyrsta atriði revyunnar kom síma- lagið hennar. Hún fylltist óum- ræðilegum fögnuði. Vivianna hafði þá litið til þess í náð sinni og meira segja gert því svo hátt undir höfði að hafa það fyrir aðal- lag kvöldsins. — Hvernig finnst yður þetta lag? heyrði Lísa sessunaut sinn hvísla. Var hann að spyrja hana? Jú, svo sannarlega. Hann laut í átt- ina til hennar. Hún fór öll hjá sér. En eins og sem mótvægi gegn feimninni var hún opinskáari en hún átti vanda til. — Ég hef heyrt það áður, hvíslaði hún. Og áður en hún vissi af hafði hún bætt við: I sím- ann minn. — í símann yðar? spurði tón- listarmaðurinn undrandi. Hún kinkaði kolli leyndardóms- full. Nú féll tjaldið og lófatakið glumdi í salnum. Hún hafði enga leikskrá og vissi ekki nöfn leik- 20 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.