Stjörnur - 10.01.1950, Qupperneq 32
höfðu skoðað hann nokkurnveg-
inn nægju sína var hann sendur
heim aftur í einkabíl þeirra hjón-
anna, í fylgd og umsjá barnfóstr-
unnar.
En auðvitað voru þau hjónin
Esther og Ben enn um stund mið-
depill samkvæmisins og Esther
lýsti því með mörgum fögrum
orðum hve hamingjusöm þau
væru og heppin með öll sín fyrir-
tæki, nýlega hafa þau keypt
benzinstöð og veitingahús, sem
þau reka og græða á.
Ekki alls fyrir löngu áttu þau
hjónin tveggja ára hjúskapar-
afmæli. Ben hafði þá lýst því yfir,
sagði Esther, að nú vildi hann
eiga rólegt kvöld heima og hún
hafði auðvitað fallist á það. En
um kvöldið heyrðu þau allt í einu
mikinn hávaða úti fyrir húsi
þeirra — 25 herbergi og eldhús
— og þar voru þá komnir í bílum
og fjölmenningsvögnum nokkrir
tugir vina þeirra, ásamt heilli
hljómsveit, sem þegar hóf að
leika uppáhaldslög þeirra. Síðan
var haldið í veizlusal eins stærsta
hótelsins í Hollywood — sem Ben
hafði tekið á leigu þetta kvöld —
og svo var dansað og svo fram-
vegis, það sem eftir lifði nætur.
Svona fara eiginmennirnir að
koma konum sínum á óvart og
gera þeim dagamun í kvikmynda-
borginni.
★
ÞAÐ ER ekki langt síðan June
Allyson hélt uppá afmælið sitt.
Það voru sextán kerti í amælis-
tertunni og gestirnir voru sam-
mála um það, að eldri en 16 ára
gæti hún ekki verið, eftir útlitinu
að dæma. Flestir vita reyndar að
hún er 26 ára. Hún er enn svo
ung og fögur að hún þarf í raun-
inni ekki að fela aldur sinn. En
það heyrir nú einu sinni ekki góð-
um siðum að tala um aldur
kvenna og síst kvikmyndastjarna.
En marga fekk hún fallega
afmælisgjöfina, næstum því fullt
herbergi. Einn liðurinn í veizl-
unni, sem hún hélt í tilefni dags-
ins, var auðvitað að skoða í pakk-
ana. Og alltaf g'at June fagnað,
hvort sem það var nú armband
úr gulli eða falleg peysa, sem í ljós
kom, en allt í einu rak hún upp
undrunar og gleðihróp öllum
öðrum hærri og meiri. Þegar hún
hafði rifið utan af einum pakkan-
um kom í ljós dálítill boxerhvolp-
ur undra fallegur. Auðvitað var
gefandinn enginn annar en eigin-
maðurinn Dick Powell. Skríkj-
andi af fögnuði, eins og skóla-
telpa, sem hefur fengið verðlaun,
hljóp June upp um háls mannsins
síns og þakkaði honum gjöfina
með mörgum kossum. Svo tók
hún í framfætur hvolpsins og
kyssti hann á trýnið. Fyrsti June
Allyson kossinn hans, en ekki sá
síðasti. Þeir, sem þekkja sögu
June Allyson — Stjörnulesendur
hafa kynnst henni í greinarflokk-
32 STJÖRNUR