Stjörnur - 10.01.1950, Page 37

Stjörnur - 10.01.1950, Page 37
um fuglaveiðar með fálkum og ýmislegt þar að lútandi, og þegar hún fór burtu, þá sendi hún veiði- manninum svo undarlegt augna- tillit, að hinn hugprúði drengur kastaði höfðinu út á aðra hliðina, rétt eins og lítil fjórtán ára gömul stúlka. Fám dögum seinna bar það við, að frú Aðalheiður reið út í ið- grænan skóginn á hvítum gæð- ingi. Nú var hún ekki í gráum búningi, heldur í fagurgrænum floskjól, og í stað ekkju-blæjunn- ar bar hún hatt á höfði úr savala- skinni með hrokknum skraut- fjöðrum. A eftir henni reið Heinz, með fálka á úlflið sér, og augu hans glömpuðu af ánægju. Þau höfðu riðið þannig góðan spöl, og kastalaturninn var löngu horfinn sjónum þeirra, bak við hinar laufguðu greinar birki- trjánna. Þá leit frú Aðalheiður um öxl sér og sagði: „Ríddu við hlið mér, Heinz.“ Og Heinz gjörði það, sem hefð- arkonan skipaði. Gatan var þröng, og reiðkjóll greifafrúarinnar straukst um kné hins unga manns. Þannig héldu þau áfram. Það skrjáfaði mjúklega í trjáblöðun- um, spörfuglamir sungu, og öðru hverju hlupu lítil skógardýr yfir götuna. Við og við heyrðust brest- ir frá brotnandi greinum, þegar hjart-dýrin þutu inn í skóginn, eða vængjaþytur fuglanna, sem styggðust og flugu upp. Svo kom þögn aftur, og djúp kyrð færðist yfir myrkviðinn. í annað skipti leit hefðarfrúin úr kastalanum til veiðimannsins, og mælti með bros á vörum: Sýndu mér nú, Heinz, að þú sért velæfður veiðimaður. „Ó veiðisveinn hýr, það herm þú mér, hvað hærra upp en valur og gleða fer?" An þess að hugsa sig um svar- aði Heinz: „Upp svífur glcðan og haukurinn hiitt, en hærra flýgur örninn um lofthvelið blátt." Frú Aðalheiður spurði aftur: „Ó, veiðisveinn hýr, mér herm þú kær, hvað hærra en örninn svifið fær?" Fálkaveiðimaðurinn hugsaði sig um í eitt eða tvö augnablik, og svaraði svo: „Hærra' en nokkur fuglanna fljúga má hin fagra sól stígur um dagsali há." Greifafrúin hneigði höfði af á- nægju yfir svarinu, og spurði í þriðja sinn: „Ó, sveinninn minn elskaði, seg mér það vin! hvað svífur ennþá ha'rra en röðulsins skin?" En nú var kunnáttu veiði- mannsins lokið. Hann horfði upp á trjáttoppana, eins og hann byggist við að hjálp gæti komið frá þeim, og svo varð hann niður- STJÖRNUR 37

x

Stjörnur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.