Stjörnur - 10.01.1950, Síða 44
MARTHA
IVERS
eftir FrattJ{ Stenman
>}•☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
z <*
2. AÐALHLUT VERK: ■»
X *
^ Martha Ivers .... Barbara Stanwyck
^ Sam Masterton . Van Heflin
jj. Toni Marachek . Lizabeth Scott ^
jj. Walter O’Neil . Kirk Douglas
FJÓRÐI KAFLI
Walter sat á legubekknum í svefnherbergi Mörthu og horfði í
gaupnir sér. — Eg hef verið að spyrja sjálfan mig í allt kvöld: Hvað
vil ég — hvað á ég að gera? Ef faðir minn væri á lífi, myndi ég
hafa spurt harrn, þótt ég viti hverju hann hefði svarað: Haltu í það,
sem þú hefur klófest, og gættu þess vel. Slæfðu samvizku þína,
traðkaðu á henni! Veiztu annars hvað samvizkubit er, Martha? Hef-
urðu aldrei verið ofsótt af martraðarsýnum, sem hafa gert þig skelk-
aða? Hefur þú aldrei lifað það aftur í draumi, sem gerðist í stiganum
fyrir átján árum? Og það, sem gerðist síðasta árið sem faðir minn lifði,
þegar ég sem nýbakaður fylkissaksóknari lét hengja þetta fátæka
manntetur? Faðir minn sat við hlið þér, Martha, og hann sagði ekki
aukatekið orð. Og þú varst þögul .... Sástu ekki augnaráð manns-
ins, þegar ég ákærði hann og krafðist þess af kviðdómendunum og
dómaranum í nafni réttlætisins að hann skyldi hengjast fyrir hið
svívirðilega morð á frú Ivers? Eg sá það. Og ég sá svipinn á andliti
hans þegar dómarinn lýsti hann sekan. Eg get ekki gleymt honum,
Martha ....
— Það þýðir ekkert að fást um það, sagði hún. Heyrðu mig,
Walter, ég held þú ættir að taka þér frí frá störfum og ferðast eitt-
44 STJÖRNUR