Stjörnur - 10.01.1950, Side 46
fastmælt. — Þú verður að láta ungu stúlkuna lausa. Kannski er
það allt og sumt sem hann óskar, og svo fer hann leiðar sinnar.
— Fer hann leiðar sinnar, hugsaði Walter. — Hversvegna skyldi
hann fara leiðar sinnar fyrst hann á kost á að græða milljónir?
— Við getum að minnsta kosti ekki fengið úr því skorið, hvað
hann ætlast fyrir, nema með einu móti, sagði hún. Slepptu stúlkunni.
Hún sendi honum augnaráð, sem gaf greinilega til kynna að þar
með væri málið útrætt, sneri við honum baki og fór.
En Mörthu hafði ekki tekizt að þagga rödd grunsemdanna í brjósti
Walters. Hann skyldi sanna henni að hennar heittelskaði Sam væri
fjárkúgari.
Og síðan tók saksóknarinn til óspilltra málanna.
— Ungfrú John, kallaði hann, — ég þarf að fá upplýsingar um
hr. Samuel Masterton. Hann hefur hvergi fast heimilisfang, en býr
á Hótel Gable. Ég þarf einnig að fá skýrslu um þá banka, sem hann
hefur væntanleg viðskipti við hér í borginni, og hvaða bílaverk-
stæði annast viðgerðina á bílnum hans. Og hringið þér síðan til Mc.
Carthy einkalögreglumanns og biðjið hann að koma hingað eins
fljótt og hann getur.
Frú O’Neil biður yður að hringja.
Sam braut heilann um það, hvað þessi bréfmiði, sem beið hans
hér í hótelherberginu, gæti þýtt. Síðan brosti hann og lagði af stað
fótgangandi til hins ríkmannlega borgarhverfis þar sem hið gamla
skrauthýsi þeirra Mörthu og Walters stóð.
Það var eins og að ganga á vit bernsku sinnar. Hann kannaðist
við allt, hvert götuhorn opnaði honum heima fulla af minningum.
Og þegar yfirþjónninn opnaði fyrir honum varð honum að brosa
þegar hann minntist þess, hvernig Sam litli hafði neyðst til að klifra
upp brunastigann, þegar hann langaði að tala við Mörthu.
Honum var vísað inn í bókaherbergið, og litlu síðar kom Martha.
Hún var mjög aðlaðandi, klædd smekklegum heimakjól.
— Ég fékk boðin frá þér á hótelinu, sagði hann. — Það stóð á
miðanum að ég ætti að hringja, en ég bjóst við að þú kysir heldur
að ég kæmi jálfur.
— Já ,sagði hún: — Mig lagaði að spjalla dálítið við þig. Þú verður
að segja mér hvað drifið hefur á daga þína öll þessi ár.
— Sjálfsagt, sagði hann.
— Við skulum sjá, sagði hún. Við getum þá byrjað á deginum
46 STJÖRNUR