Stjörnur - 10.01.1950, Síða 48

Stjörnur - 10.01.1950, Síða 48
— Já, hann annaðist allt, sagði hún þurrlega. — En þér geðjaðist kannski ekki að því? Hún svaraði ekki. Hún opnaði dyrnar að borðstofunni og sýndi honum hana. — Hér geta margir setið til borðs, án þess að þröngt verði á þingi, sagði hann .— Já, þú átt fallegt heimili, Martha ,stórt, en þó aðlað- andi. En hvað ég vildi mér sagt hafa — hvenær giftuð þið ykkur? — Hversvegna ég giftist honum? sagði hún. Æ, þú spurðir hvenær. Þegar ég kom úr skóla. — Og hversvegna? hélt hann áfram. Hún stansaði við stigann, sem var lagður marmara og með út- skornu handriði. — Eigum við að líta á herbergin uppi? Og svo er víst komið að þér að segja frá. Hún hafði ekki svarað síðustu spurningu hans og hann krafði hana ekki um svarið. — Eg er eins og opin bók, sagði hann brosandi. — Ég strauk með fjöllleikaflokknum, eins og þú manst. Ég eignaðist marga vini meðal dýranna og leið prýðilega. Ég nurlaði saman peningum og keypti nokkur dýr. En sá böggull fylgdi skammrifi að þau þörfnuðust um- hirðu. Svo seldi ég þau og yfirgaf flokk'inn og fór í þess stað að fást við menn. Það gekk betur. Ég er fjáhættuspilari, og ég á bæði vini og óvini og .... Hann þagnaði snögglega. Hún hafði opnað dyrnar uppi og hann þekkti aftur herbergið hennar. Hann brosti, því minningarnar flykkt- ust að honum. — Þetta er eina herbergið sem ég hef ekki breytt, sagði hún. Hann gekk inn í herbergið og litaðist um. Hann veitti því athygli að hún lokaði dyrunum að baki þeirra og honum geðjaðist ekki að því .Hún bauð honum vindling. Hann erti hana með brúðunni, sem enn sat á borðinu undir glugganum. Og glugginn — sem hann skreið inn um síðasta kvöldið. Hann mundi að Walter hafði opnað hann fyrir honum. — Manstu þetta allt? sagði hún. Manstu hvað voru ægilegar þrum- ur það kvöld? Ég var alltaf hrædd í þrumuveðri, en það grunaði þig aldrei. Ég vildi vera eins og þú — hræðast ekkert. Manstu það? Hún greip hönd hans — í rödd hennar var seiðandi hreimur, og augu hennar leifruðu þegar hún horfði á hann. Sam varð ónotalega við. Hann grunaði að hún væri að reyna að byggja brú yfir þessi átján ár og vildi sýna honum, að hún hefði ekki breytzt gagnvart 48 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.