Stjörnur - 10.01.1950, Síða 50
Að opinbera ...
Framh. af síðu 2.
Stirnir eða Aróru og biðjum um hlut-
lausan dóm.
Llndirskrift Vinur.
SVARIÐ verður stutt. Stimir og Áróra
hafa bæði rætt málið og kemur þeim
saman um að ráðleggja piltinum að
draga það í lengstu lög að opinbera.
Okkur skilst að um sambúð og hjúskap
geti ekki orðið að ræða fyrr en eftir
nokkur ár, bóndaefnið enda ekki komið
á löglegan giftingaraldur fyrr en eftir 4 ár.
Það er ekki venjulegt hér á landi að
vera mörg ár í festum. Opinberun er ekk-
crt annað annað en auglýsing gefinna
heita og ákvörðunar um hjúskap í ná-
inni framtíð, reynslutími. Bindi ekki
ltönd ástar og trúnaðar eru opinber heit
einskisvirði. Hin ungu hjónaefni vita nú
hvað þau viija. Það ú að vera þeim nóg.
Næstu ár eru mikill þroskatími. Ef vel
fer, vilja þau enn hið sama eftir tvö,
þrjú ár. Þá þekkja þau bæði hvort ann-
að og lífið betur en nú. Það er ekki vfst
að það breyti neinu um ákvörðun þeirra.
En það gæti samt hugsast, að þroski
þeirra og lífsviðhorf hefðu svo mjög orð-
ið önnur, að þciin yrði ljóst cftir nokkur
ár, að þau hefðu ekki valið rétt.. Þá væri
auðveldara að gera hið rétta ef ekkert
hefur verið formlega opinberað. Að opin-
bera trúlofun sína of snemma getur leitt
hennar þráðu kossa hans. Honum féll þetta illa, en ekki hafði honum
fallið betur við skapæsinginn sem hafði gripið hana áðan.
— Vegna minningar okkar, sagði hún.
— Já, vegna minninga okkar, sagði hann.
Hann kyssti hana. Hún reyndi að halda honum föstum, reyndi að
yfirbuga andspyrnu hans, en hann ýtti henni frá sér á sama hátt og
hún hafði forðast kossa Walters í gærkvöldi.
— Vertu sæl, Martha.
Hún horfði á eftir honum. Hann sneri sér við í dyrunum og kink-
aði kolli. Nú færi hann, hugsaði hún. Ég afber það ekki! En hann
skyldi ekki fá að fara. Hún gæti ekki séð af honum.
Hún gekk að símanum. Hún hringdi til verkstæðis Dempseys.
— Þér talið við frú O'Neil, sagði hún. Þér eruð að gera við bíl
fyrir hr. Sam Masterton? Ég ætlaði bara að tilkynna yður að þér
þurfið ekki að flýta yður með hann. Þegar hr. Masterton hringir og
spyr eftir honum, þá er hann ekki tilbúinn. Já, annað var það ekki,
hr. Dempsey.
Dempsey lagði frá sér heyrnartólið og gretti sig.
— Hérna fáið þér tillegg í skýrsluna yðar, sagði hann við Mc Corty
leynilögregluþjón, sem var staddur í verkstæðinu. Frú O’Neil æskir
þess að hr. Masterton yfirgefi ekki borgina — ekki að svo stöddu.
Frh. í næsta hefti.
50 STJÖRNOT