Víðförli - 01.09.1947, Síða 7

Víðförli - 01.09.1947, Síða 7
í'RÁ KIRKJUÞINGINU í LUNDI 133 Nýjatestamentisins eru einka heimild og regla þess boð- skapar, sem kirkjan á að flytja. Kenning fagnaðarboðskap- arins getur aðeins varðveitt sinn kristilega hreinleik með ófrávíkjanlegum trúleik við hið guðlega orð. Ritningin í heild vitnar um Krist (Jóh. ð, 59). Gamla-' testamentið vitnar um Krist sem þann „er koma skal“, og mikilvægi þess verður aðeins skilið í ljósi Guðs fullkomnaða verks í Kristi, sem Nýjatestamentið vitnar um. Og hinsveg- ar verður Nýjatestamentið aðeins skilið í sambandi við hið gamla, sem uppfylling þeirra fyrirheita, sem þar eru gefin oss. Þannig hefur allt miðdepil sinn í Kristi. I honum mætist hið fyrirheitna verk Guðs og hið fullkomnaða verk hans í fyllingu tímans. Ritningarnar eru vitni um þetta Guðs verk, en vitni, sem í sjálfu sér er verk, þ. e. framhald á verki Guðs, sem allir hlutir eiga sitt upphaf í. Sjálf prédikun boðskap- arins ber það í sér, að Guð fylgir eftir verki sínu gegnum oss og meðal vor. Þegar fagnaðarerindið verkar, leysir Guð manninn úr böndum myrkursins og leiðir hann inn í hið nýja mannkyn, en Drottinn þess og höfuð er Kristur. Þar eð Ritningarnar eru boðskapur um hlut, sem raun- verulega hefur orðið í tilveru vorri, um verk, sem Guð hefur fullkomnað oss til sáluhjálpar, er það hin brýnasta nauðsyn, að þessi boðskapur haldi mikilvægi sínu og nái til vor ó- breyttur.---------Þegar Guð í Kristi býður oss friðarsátt- mála sinn, verðum vér að meðtaka hann alveg ei'ns og hann er fram boðinn, og vér megum ekki draga út úr honum hluti, sem innblásnir eru af vorum eigin hugsunum eða ósk- um. Því verður rétt og sönn útlegging Ritninganna höfuðatriði. Boðskapurinn um verk Guðs í Kristi, kunngjörður af Ritn- ingunum, er fastur og skýr. Hann ruglast einungis við það, þegar menn við skýringar hans, ganga út frá eigin hugsun- um og óskum og leyfa þeim að yfirtroða hina augljósu meiningu Ritninganna. I sögu kirkjunnar hafa menn oft leitað dýpri meiningar bak við boðskapinn, í stað þess að

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.