Víðförli - 01.09.1947, Qupperneq 25

Víðförli - 01.09.1947, Qupperneq 25
UM KTRKJUR OG BÚNAÐ ÞEIRRA 151 ríkja á landi voru um þessi efni. Sumar sveitir, þar sem áður voru fjölmennar sóknir, eru nú að auðn komnar fyrir mann- fæðar sakir. En annars staðar er nú þéttbýli, þar sem áður var varla byggt ból. Þá hafa og samgöngur víða breytzt svo mjög til batnaðar á síðari árum, að suins staðar má nú aka um heilt prestakall á skemmri tíma en áður varð farið um eina sókn. Þessar breyttu aðstæður krefjast að sjálfsögðu breytinga á skipan sókna og prestakalla á landinu og þar með á staðsetn- ingu kirkju og prestsseturs innan sóknar og prestakalls. Mál þessi munu v.era eitthvað til athugunar hjá kirkjustjórn lands- ins og verður vart um þau fjölyrt hér til gagns, fyrr en á þau er komin fastari skipan og hentari þjóðhögum, eins og þeir nú gerast. Yið alla nýskipan í þessum efnum verður þá fyrst og fremst að hafa í huga heill og þarfir heilagrar kirkju, skynsam- lega íhaldsemi og virðingu fyrir fornum helgistöðum. Margir eru þeir staðir á íslandi, sem oss væru óhugsandi öðruvísi en sem kirkjustaðir og prestssetur sakir sögu sinnar og staðar- heigi. Nægir þar að benda á hina fornu biskupsstóla, Skálholt og Iíóla. Hinu skyldi þó íslenzk kirkja aldrei gleyma, að 'hún er enn stríðandi kirkja og verður því að hafa stöðvar sínar, vopn og verjur á þeim stöðum, þar sem þeirra er mest þörf hverju sinni. Um fjármál kirknanna er svipaða sögu að segja. Sem kunn- ugt er, gera lög svo ráð fyrir, að söfnuðir landsins reisi kirkjur sínar frá grunni hver um sig og haldi þeim síðan við á sinn kostnað. Hins vegar er það Ijóst hverjum þeim, sem kunnur er í sveitum landsins, að siíkt er ofraun fámennum söfnuðum og félitlum, eigi smíði kirkjunnar og viðhald að vera sæmilegt. Augljóst er og, að bágborin er sú búmennska að láta 70—80 manna söfnuð reisa kirkju af vane.fnum sínum, sem svo er vanhugsuð og vanviðuð öll, að hún á sér enga aldursvon eða gagnsmuna, hvorki á veraldlega vísu né andlega. Eins og nú er komið málum með þjóð vorri, má sú leið telj- ast vænlegust til þrifnaðar byggingarmálum þjóðkirkjunnar, að ríkið styrki kirkjubyggingar að svipuðum hluta og skóla-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.