Víðförli - 01.09.1947, Qupperneq 34

Víðförli - 01.09.1947, Qupperneq 34
160 VÍÐFÖRLI er svo að orði komizt, að aftur skuli áherzla á þetta lögð. Eg kemst ekki hjá að nefna nazismann og fara um hann fáeinum orðum, þótt ég sé löngu búinn að fá velgju af ö!l- um þessum holgóma hrópum um nazismann. Nú vilja allir bíta, þegar ljónið liggur dautt og flegið. Og það er svo gott að vita, að nazisminn var ekki dularfullt fyrirbæri, sem allt í einu skaut upp á yfirborð jarðar úr undirdjúpunum og dundi yfir saklaust mannkyn eins og aðsteðjandi hremm- ing. Hann spratt upp í hjarta álfunnar, með þjóð, sem er öndvegisþjóð um marga hluti, óx úr jarðvegi, sem álfan öll hafði undirbúið og lengi ræktað og sáð til þessarar upp- skeru. Og sá jarðvegur er ekki úr sögunni, þótt nazisminn hafi orðið undir í vopnaviðskiptum. Nazisminn var sjúk- dómseinkenni, ekki sjúkdómurinn sjálfur. Mein, sem álfan og vestræn menning líður af, brauzt út í Þýzkalandi og varð að drepi. Það var skorið á lcýlið og lit vall sá ó- fögnuður, sem allir lceppast um að fordæma nú. En það má lukkan vita, hvort vér erum svo bólusettir fyrir þessari smittun sem vér höldum og æskilegt væri. Sjúkdómur lækn- ast ekki, þótt illkynjað einkenni hans sé afmáð. Hafið þér heyrt það, að Hitler er ekki dauður? Og hafið þér heyrt, hvar hann leynist? Hann er ekki á Spáni eða S.- Ameríku, eins og fréttamenn hafa stundum getið til. Hvar þá? Það er nýlega komin út bók í einu nágrannalandi voru, sem upplýsir hvar hann er niður kominn og rökstyður þær upplýsingar þannig, að það er ekki auðgert að hnekkja þeim. Og nú bið ég menn að taka á stillingunni, því að hugsazt getur, að sá góði herra sé ekki langt undan. Nafn bókarinnar gefur til kynna, hvar hann er. Hún heitir: „Hitler í okkur sjálfum“. Persónan alræmda, Adolf Hitler, er dauð, en þær hvatir og sá hugsunarháttur, sem gerðu honum mögulegt að verða það, sem hann varð, þetta lifir, lifir að einhverju leyti í oklcur öllum, dafnar enn á ýmsum sviðum í lífsskoðun og lífsafstöðu samtíðarinnar. Manndýrkun var annað einkenni nazismans, mannfyrir-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.