Víðförli - 01.09.1947, Síða 36

Víðförli - 01.09.1947, Síða 36
urinn er verkfær. Frá útkomunni dregur höf. áætlaðan með- al kostnað við uppeldi og undirbúning undir ævistarfið. Nið- urstaðan verður, að verðmæti þýzlcs manns sé að meðal tali 24.4.OO ríkismörk. Með hliðstæðum útreikningi kemst hann að þeirri niðurstöðu, að meðal verðmæti konunnar sé 11,000 ríkismörk. 011 þýzka þjóðin leggur sig á þennan hátt á 1625 miljarða marka. En með þessu er ekki allt sagt um verðmæti mannsins, auk þessa verðmætis, sem byggist á af- köstum, hefur maðurinn líka það, sem höf. kallar frjósemis- verðmæti eða getnaðarverðmæti, hæfileikann til þess að að geta afkvæmi. Og loks minnist svo höf. í niðurlagi grein- arinnar á menningarverðmæti mannsins og um það fer hann ekki mörgum orðum, og gerist nokkuð torskilinn, en virðist skýra það svo, að það sé fólgið í samanlögðu af- kastaverðmæti og getnaðarverðmæti einstaklingsins. Ég efa ekki, að flestum yðar þyki firn mikil að lieyra þetta og tæplega trúlegt. En satt er það. Og ég vil spyrja: Af hverju er þetta fjarstæða? Er þessi útreikningur ekki rökrétt útfærsla ákveðins grundvallarskilnings á því, hvað maðurinn sé? Þetta er efnishyggja, rökrétt og sjálfri sér samkvæm efnishyggja, aðeins sett fram á ldúrari og hisp- urlausari hátt en almennt gerist. Var sök nazistanna yfir- leitt nokkur önnur en sú, að þeir drógu rökréttar ályktanir af forsendum lífsskoðunar, sem Vesturlönd hafa hægt og hægt verið að tileinka sér um fáeinar aldir og hröðum fetum í fáeina áratugi, í meir eða minna vitandi andstöðu við forna arfleifð, sem til vor er komin austan úr Asíu og með stuðningi margra, sem voru manna ólíklegastir að eðl- isfari og innræti til þess að stofna til hermdarverka gegn mannkyninu, en sáu af einhverjum ástæðum ekki betur, en að „Kristur hinn austræni“ hefði ófyrirsynju og illu heilli komið með sinn blóðuga kross vestur hingað og allt, sem honum fylgdi, hefði varpað ferlegu skýi yfir heiða tinda Pindoss og Parnassoss og áshelgan ljóma Tslands? Hvað er maðurinn? Hefur þú hugsað út í, hverju þú mundir

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.