Kveikt á perunni - 15.01.2004, Side 14

Kveikt á perunni - 15.01.2004, Side 14
i .Kveiktá perunní Sogið enda ljóst að áin yrði framtíðar- orkuuppspretta bæjarins. Eldavélavæðingin Fyrsta virkjunin í Sogi var Ljósa- fossvirkjun sem tekin var í notkun 1937. Tilkoma virkjunarinnar gjör- bylti raforkumálum íbúa höfuðstaðar- ins. Aður hafði rafmagnið nánast ein- vörðungu verið nýtt til ljósa og lítils háttar vélareksturs en með Sogsraf- magninu margfaldaðist framleiðslu- getan í einu vetfangi. Til að standa undir fiárfestingunni réðust bæjaryf- irvöld því í átak þar sem almenningur var hvattur til að festa kaup á eldavél- um frá fyrirtækinu Rafha í Hafnar- firði. Bauðst viðskiptavinum Raf- magnsveitunnar að kaupa eldavélam- ar með afborgunum en það þótti nýlunda í viðskiptum. Á næstu árum var Ljósafossvirkjun stækkuð í áfóngum og lauk fram- kvæmdum að fullu árið 1944. Sama ár lagði Rafmagnsveitan fram áætlun um framtíðarskipan orkumála. Var þar stungið upp á ýmsum kostum: fullvirkjun Sogsins, virkjun Botnsár í Hvalfirði, byggingu olíuknúinna raf- stöðva í bæjarlandinu og jarðgufú- virkjunum í Hengli eða Krýsuvík. Sogið-Orkuuppspretta Reykjavíkur Sogið, afrennsli Þingvallavatns, er vel fallið til virkjunar frá náttúr- unnar hendi. Það rennur nítján kíló- metra leið um tvö stöðuvötn, Úlfljóts- vatn og Álftavatn uns það sameinast Hvítá í vatnsmestu á landsins, Olf- usá. Yfirborð Úlfljótsvatns er 22 metr- um lægra en Þingvallavatns og nefn- ist sá hluti árinnar Efra-Sog. Efsti foss fyrir neðan Úlfljótsvatn er Ljósa- foss en fallhæð hans er 13 metrar Nokkm neðar í ánni em Irafoss og Kistufoss. Athafnasamir menn fengu snemma augastað á Soginu sem virkjunarkosti og þegar fyrir aldamótin 1900 var stofnað félag um slíkar framkvæmdir. Árið 1917 hóf Reykjavíkurbær að festa kaup á vatnsréttindmn jarða við Niðurstaðan varð sú að virkja áfram í Soginu og reisa olíuknúna gufuafls- stöð við Elliðaár. Fyrstu áætlanir um virkjun Sogs- ins gerðu ráð fyrir að næst á eftir Ljósafossi yrði ráðist í virkjun Efra- Sogs. Þegar til átti að taka var hins vegar álitið að slík virkjun yrði of lítil. Þess í stað var ákveðið að virkja neðri Sogsfossana í einni stöð. Samhliða var hafinn undirbúningur að byggingu Toppstöðvarinnar í Elliðaárdal sem sett var upp á áranum 1946-1947. Sogsvirkjunarlögin Áformin um áframhaldandi virkjun Sogsins kölluðu á lagasetningu frá Al- þingi. Árið 1946 voru samþykkt ný Sogsvirkjunarlög og gerðu þau ráð fyrir eignaraðild ríkisins að Sogsvirkj- un, auk ríkisábyrgðar á nauðsynleg- um lánum. Var miðað við að eignar- hluti ríkisins yrði 50% á móti Reykja- víkrubæ þegar Sogið væri fúllvirkjað. Öflun lánsfjár til virkjimarinnar var örðugleikum bundin uns Marshallá- ætlun Bandaríkjastjórnar kom til. Stærstur hluti fiármagnsins var feng- inn að láni úr svonefndum Mótvirðis- sjóði sem stofnaður var í framhaldi af Marshallaðstoðinni. Oft er því haldið fram að Sogsvirkjunin hafi fengið byggingarkostnað Irafossvirkjunar að gjöf. Það er rangt því um lánsfé var að ræða - þótt vissulega hafi verið um hagstæðari lánskjör en ella var kostur á. Ibúar Reykjavíkur fylgdust spennt- ir með framkvæmdum við Sog. Bær- inn var í stöðugum vexti og eftir heimsstyijöldina komust Reykvíking- ar einnig í kynni við fjölmörg orkufrek heimilistæki. Á ámnum 1950 til 1953 var því viðvarandi rafmagnsskortur með tilheyrandi skömmtun yfir vetr- armánuðina. Eftir að Irafossvirkjun var tekin í notkun lauk þessum skorti. Áform um stórvirkjanir á Islandi í byijun tuttugustu aldar tengdust oft hugmyndum um stórfellda áburðar- framleiðslu, með útflutning í huga. Höfðu norskir hugvitsmenn þá nýlega uppgötvað leið til að vinna köfnunar- efni úr andrúmsloftinu á raforkufrek- an hátt. Ekki leið þó á löngu uns nýj- ar vinnsluaðferðir gerðu þessa tækni óhagkvæma. Á fjórða áratugnum var á nýjan leik hreyft við hugmyndum um íslenska áburðarverksmiðju að frumkvæði Skipulagsnefndar atvinnumála eða „Rauðku“ sem svo var kölluð. Þau áform vom minni í sniðum enda ein- ungis ætlunin að framleiða fyrir inn- anlandsmarkað og spara þannig gjaldeyri. Virkjanir og stóriðja Ásgeir Þorsteinsson, verkfræðing- ur, var sérstakur áhugamaður um að ráðist yrði í byggingu áburðarverk- smiðju. Hugmyndir hans gengu út á að umframorka Sogsvirkjana, utan álagstíma, yrði nýtt til framleiðslu á vetni. Vetnisbirgðir þessar myndu svo aftur sjá verksmiðjunni fyrir ódýrri raforku. Minntu áætlanir þessar helst á seinni tíma hugmyndir um að nota vetni sem geymslumiðil raforku. Hugmyndir Ásgeirs um áburðar- framleiðslu komu aftur til umræðu í tengslum við virkjun Irafoss. Horfið var frá vetnisútfærslunni en þess í stað ákveðið að reisa öllu stærri verk- smiðju sem gæti orðið kjölfestuvið- skiptavinur virkjunarinnar. Upp frá því hafa langflestar stórvirkjanir á Is- landi tengst nýfjárfestingum í stór- iðju. Þriðja og síðasta Sogsvirkjunin var reist á ámnum 1957 til 1960. Hún fékk nafnið Steingrímsstöð, kennd við Steingrím Jónsson, rafmagnsstjóra í Reykjavík og forstjóra Sogsvirkjunar. Bygging Steingrímsstöðvar tengdist meðal annars stofnun Sementsverk- smiðjunnar á Akranesi sem fékk raf- orku frá Soginu. Virkjunin var hætt komin í flóði eftir að vamarveggur í Þingvallavatni brást á byggingartím- anum en betur fór en á horfðist og engin slys urðu á mönnum. Rafsuða Þegar rafmagnið hóf innreið sína þurfti að kenna fólki að nota það, því rafmagnið var hægt að nýta á fleiri vegu en til lýsingar. Árið 1937 gaf Rafmagnsveita Reykjavík- ur út bækiing gagngert til að kenna húsmæðrum að elda við rafmagn. Bækling- urinn var að norskri fyrirmynd og hafði reynst vel þar í landi. Nú á dögum þykir bæk- lingurinn hin besta skemmtilesning eins og sjá má á þessum upphafsorðum hans: suðu, sem hann þarf til þess að verða góð- ur. Það má sjóða með litu vatni of- Mi Iatreiðslan er mikill þáttur í heimilisstörfum kvenna. Allir munu óska, að hún verði sem auðveld- ust og bezt. Reynslan sýnir, að þar getur raf- magnið verið ágæt aðstoð. Það getur mjög bætt mateiðsluna. Með því að allir gera sér þetta ekki ljóst, hefir þessi leiðarvísir verið ritað- ur. Hann á að kenna mönnum að nota rafmagnsstóna samkvæmt nýjustu reynslu. Reynt hefir verið að gera hann svo stuttan og skýran, sem unnt var, og því er aðeins drepið á aðalatriðin, til þess að skýra hinar nýju aðferðir. Hefiist handa, sjóðið og steikið eins og hér er lýst, og þér munuð komast RST íraustur samstarfsaðili að raun um nýja kosti, sem rafmagninu fylgja; þér munuð sanna, að matreiðsla með réttri notkun rafmagnsins gengur að óskum. Ætlið þér að láta það, sem hér er sagt, „fara inn um annað eyrað og út um hitt?“. Ekki trúum vér því. Hver húsmóðir kýs auðvit- að, að mateiðslan gangi „eins og í sögu’„ og takist vel. Rafmagnið styður að því. Síðan á dögum Evu hafa konur vit- að, að stöðuga gát þurfti að hafa á því, er soðið var við eld, að log- inn -1000-1500 stiga heitur - eyðilegði ekki matinn. Þess vegna urðu þær að sjóða mat- inn í miklu vatni. Þur- suða á loga eyðilagði matinn samsundis. En maturinn fer ekki vel á því að sjóða í öllu þessu vatni og við hin háu og ójöfnu hitatig logans. Næringar- og bragðefni sjóðast út í vatnið - og síðan er vatninu oft helt í vaskinn! Rafsuðuhellan Maturinn verður beztur, þegar hann er soðinn við hæfilegan, jafnan og mildan hita með litlu vatni (gufu- suða) eða seyddur í safa sínum án þess að bæta vatni við. Það er hægt á rafsuðuhellunni. Hún gefur frá sér til pottsins lágan, jafnan og hentugan hita, þegar soðið er. Með einu taki á rofann - með þvi að færa hann frá 3 til 1, þegar sýður - helzt hitastigið svo lágt, að bruni, of- suða og bullsuða getur ekki átt sér stað, og maturinn fær einmitt þá Vi8 rafmagn réttír beztlr. urlítill vatnssopi nægir til að framleiða þá gufu, er þarf til suðunnar. Og mörg efni, sem nóg I vatn er í, má - eins og síðar verð- ur sýnt - seyða í safa þeirra, án þess að bæta vatni við. Mörg húsmóðir (er hugsar til log- ans) verður tortryggin, þegar henni er sagt, að sjóða kartöflur með 1/2 bolla af vatni í pottinum, og henni bregður eflaust við, fyrsta sinn er hún sér þorskstykkin lögð í pottinn og soðin vatns- laust. En þegar hún hefir reynt þetta og séð ár- angurinn, skilst henni eflaust, að jafnari, mildari og hentugri suðuhiti, en rafmagnið veitir, er ekki til, og að rafsuðuhellan er ágætt tæki til að búa til, fljótt og hæglega, góðan og saðsaman mat. Og henni verður sjálfsagt að orði: Að ég skuli ekki hafa reynt þetta íyr! Að sjóða alveg rétt við raímagn er aðal- lega fólgið í því að fylgja þessum reglum: Hafið lítið vatn til suðunnar - oft er mat- urinn seyddur, án þess að bæta vatni við. Suðunni er fljótt komið upp með því að verða stilla á 3 (sterkan hita), þangað til sýður (gufar), síðan er soðið áfram með rofann á 1, við og við líka með rofann á 0. Hafið gott lok á pottinum. Hafið pott með léttum, þykkum botni og helzt með sama þvermáli og rafsuðu- hellan. Svo fer oft þeim, sem sýBur viB eld (1000— 1500“ C.).

x

Kveikt á perunni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kveikt á perunni
https://timarit.is/publication/1992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.