Skák - 06.03.2012, Síða 6
Flugdrekanum fylgt úr hlaði
Fyrir ofan Caltabellotta á suðvestur-
strönd Sikileyjar býr drekinn
ógurlegi. Hann heldur til í Svörtu
loftum - tindóttum klettum sem gnæfa
yfir húsþökunum. Hann er grimmur
mjög og dauðhræddir þorpsbúarnir
þora ekki annað en hlýða þegar hann
krefst fórnar við sólarupprás sérhvers
dags. En þegar sólin skín hæst á klappir
og kletta, gerast undur nokkur í Svörtu
loftum. Drekinn lyftir sér til flugs. Þessi
þunglamalega skepna leikur á náttúrulög-
málin, breióir út vængina og flýgur. Fyrst
lágt, með nokkrum bægslagangi en svo
hnitar hún hringi upp á við uns hún er
fýrir allra augum. Svífur áreynslulaust um
forsali himnanna.
Það var í upphafi síðastliðins sumars að
Arnar okkar Þorsteinsson fékk þá flugu
í höfuðið að Mátar skyldu bjóðast til
þess að gefa út Tímaritið Skák. Hann
ætti sér þann draum að Mátar tækju upp
trosnaðan þráð og héldu á lofti því merki
sem Jóhann Þórir hélt hæst með prýði og
áræði um árabil. Að við drægjum þann
dreka aftur á loft sem legið hefði óbættur
hjá garði of lengi.
Við hefðum ágætum mannskap á að skipa
til slíks verks, hélt Arnar áfram. í okkar
röðum væru þokkalega skrifandi menn,
tveir prófarkalesarar að ógleymdum
forleggjara. Með slíkum mannskap ætti
útgáfa ársrits um skák að vera hægðar-
leikur.
Við félagarnir aörir tókum þessu misvel
- og á milli þess sem eftirlætis byrjun
Arnars, Drekinn ógurlegi, kom upp
á reitunum svarthvítu og spjó eldi og
eimyrju í takt við íslensk náttúruöfl, kom
hann niður í hreiður Mátanna og mataði
okkur á hugmyndinni. Smátt og smátt
sáum við ljósið og eygóuni með auga
arnarins gullið tækifæri fyrir litla félagió
okkar.
Við gætum slegió tvær flugur í einu höggi
- gert svolítió gagn og eins aukió vió
sjóð félagsins. Ekki var vanþörf á hinu
síóarnefnda, því ef við ætluðum okkur
möguleika í efstu deild var ljóst að vió
þyrftum að spýta í lófana og safna liði.
Við hittumst vestur í bæ, í híbýlum
Tómasar Hermannssonar, og lögðum
drög að útgáfunni. Eitthvað dróst hann
á langinn fundurinn og flöskulíkunum
fjölgaói jafnframt í borókróknum á
Hávallagötunni. Áætlun var engu að síður
smíðuð og sýnin furðu skýr og sam-
eiginleg í anda sannra Máta.
Pálma var falið það hlutverk að kynna
hugmyndina fyrir Skáksambandi íslands.
Forsetanum Gunnari og hans til vara
Halldóri Grétari, leist strax vel á hug-
myndina. Og stjórninni allri í raun. Hún
tók upplegginu fagnandi og hefur frá
fyrsta degi stutt okkur og hvatt til dáða.
Stjórnin vildi þó hafa vaðið fýrir neðan
sig og athuga með undirtektir áður en
í slíkt stórvirki yrði ráðist. Það þurfti að
fóðra drekann áður hann flygi. Þar sem
vænlegast þótti að selja blaðið í áskrift lét
stjórnin útbúa skoðanakönnun á netinu.
Tímabil Upprunalegt veffang Aðgengilegt í dag Umsjónarmaður
1995-1998 vks.is/skak Skák á íslandi http://web.archive.Org/web/19990218182643/http://www.vks.is/skak/ Daði Örn Jónsson
1998-2001 simnet.is/hellir Heimasíða Hellis http://web.archive.Org/web/19990508004836/http://www.simnet.is/hellir/ Gunnar Björnsson
2001-2005 skak.is vistað á Strik.is Ekki aðgengilegt. Gunnar Björnsson
2005-2007 skak.is vistað á ruv.is og leit.is skak.is Gunnar Björnsson
2007- skak.is mbl.is síðan 2007. skak.is Gunnar Björnsson
Tafla 1, sögulegt yfirlit yfir meginvefsíður um skák á íslensku