Skák - 06.03.2012, Page 7
Þar gátu áhugasamir um útgáfuna skráð
sig til bindandi áskriftar að blaðinu. Þessi
skoðanakönnun hefur verið sýnileg á
skáksíðunni annað veifið síóan í sumar.
Undir sumarlok var ljóst að fjöldi áskrifta
væri orðinn nægur. Gunnar Björnsson gaf
grænt ljós og við hófumst handa.
Þegar samkomulag var handsalað orti
Halldór Blöndal:
Fyrir þá sem tefla tafl
tímarit sem er gagn að
hefur vantað en hér er afl
helvíti er það magnað.
Forsaga málsins er náttúrlega sú, að
á aðalfundi SÍ, 25. maí sl., bar Bragi
Halldórsson upp þá tillögu að Skáksam-
bandið hefði forgöngu um endurreisn
Tímaritsins Skákar. Bragi sagði að eldri
skákmönnum sviði sárt að vita til þess
að kaflar úr skáksögunni hyrfu eitthvað
út í eterinn - út í bláinn bókstaflega.
Það væri erfitt að leita að ákveðnum
viðburðum á vefnum og tímaröóun
og samhengi héldist þar ekki. Svo lyti
umfj'öllun á vefnum öðrum lögmálum en
hið prentaða orð. Á vefnum þarf allt að
gerast hratt, svona eins og hjá fréttaveitu,
meðan tími gæfist frekar til yfirlegu og
vandaðrar umfjöllunar á prenti. Fyrir
utan þá staðreynd að gögn á netinu þarf
að meðhöndla á sérstakan hátt. Þegar
tímar líða safnast upp mikið efni sem
þarf að afrita og geyma í skjalasöfnum á
netinu. Það er ekki gefið að vefur sem til
er í dag verði lífs á morgun.
Það verður raunar að segjast að netum-
fjöllun um skák á íslandi er óvenju mikil.
Veffangið „skak.is" er opinber fréttasíða
SÍ. Þar hefur forsetinn sjálfur lagt drýgsta
hönd á plóg og hefur lengst af séð um
síðuna. Fyrstu íslensku skáksíóunni hélt
þó Daði Örn Jónsson úti. Hann sá um
prýðilega síðu, Skák á Islandi, frá 1995-
1998 sem var hýst undir léninu vks.is/
skak. Hann telst því frumkvöðull á þessu
sviði. Frá 1998-2001 var heimasíða Hellis
í raun aðalvettvangur um skák á Islandi á
vefnum. Frá 2000 hefur svo SÍ haldið úti
vefnum skak.is. Annars er vísað í með-
fylgjandi töflu.
En þegar skipt er um vefi, eða
mannabreytingar verða, þá tapast
þekking og hlutir riðlast. Dæmi eru
um að stórir kaflar séu ekki lengur
aðgengilegir en það var einmitt það sem
gerðist þegar skáksíðan gamla var færð
af strik.is. Efnið er þó enn til, í gömlum
gagnagrunnum, en krefst töluverðrar
vinnu ef gera á það aftur tiltækt þannig
að hægt sé að leita í því. Hér er um
nokkuð langt tímabil að ræða, eða frá
2001 til 2005. Spennandi tímabil, m.a.
Hróks-árin. Á þessu tímabili kom ekkert
tímarit út um skák á íslandi, svo þar er
skarð fyrir skildi.
Utgáfa ársrits eins og þessa er viðleitni
til að auka við flóru skákumfjöllunar og
fýlla upp í það gap sem gín við þegar
prentað efni um skák á fslandi er tekið til
skoðunar. Þó ber í þessu tilliti að nefna
umfjöllun dagblaðanna. Sérstaklega
hefur Morgunblaðið staðið sig vel og
birtir reglulega greinar og viðtöl um skák.
Helgi Ólafsson er þar með vikulega pistla,
að ógleymdri daglegri skákþraut í umsjón
HelgaÁss Grétarssonar. Hrafnjökulsson
skrifar einnig skemmtilega skákpistla
í Viðskiptablaöið. Meó tilkomu nýrrar
tækni verður útgáfa slíks efnis á netinu
auðveldari og aðgengi að því enn betra.
Telja má líklegt að spjaldtölvur auki mjög
eftirspurn eftir rafbókum og tímaritum
af ýmsum gerðum. Þá verður rúm fyrir
meira en fréttavefi um skák á netinu.
Þetta er tækni sem mun ryója sér til rúms
á næstu árum. Hver veit nema Tímaritið
Skák verði selt á netinu sem veftímarit
eftir fáein ár.
Engu að síður vantar tímarit um skák.
Eintak með rúmtaki og lykt. Prentsvertu
og glanspappír. Blaðsíður með texta og
myndum. Blað sem hægt er að fletta og
taka með sér og eiga. Einnig þegar ekkert
er rafmagn og rafhlöður tæmdar.
Tillaga Braga var samþykkt mótatkvæða-
laust.
Samkvæmt samningi skal ársrit þetta fyrst
og fremst fjalla um íslenska skákvióburði
og íslenska skákmenn. Þaö skal vera yfir-
litsrit og spanna tímabilið frá rnars 2011
til mars 2012. Krónólógískt hefst blaðið
með umfjöllun um Reykjavíkurmótið
2011 og lýkur í mars 2012 með seinni
hluta Islandsmóts taflfélaga á Selfossi.
Afreks- og landsliðshorn á aö vera að
finna í blaðinu, kvennaskák og unglinga-
starfi eru gerð skil. Auk þess leituðum við
fanga á óhefðbundnum vettvangi. Hér má
benda á áhugaverða grein Jóns Þorvalds-
sonar um vísdóm reynslunnar, Undra-
veröld Miklameirs og stórskemmtilega
grein Braga Kristjónssonar um Bobby
Fischer.
Blaðið sem þú hefur í höndunum er
afrakstur töluverðrar vinnu. Með full-
tingi ykkar og stuðningi höfum við reynt
að draga upp mynd af skáklífi á íslandi
síðasta árið. Það voru margir sem lögðu
hönd á plóg og komu að verkinu beint og
óbeint. Fyrst skal nefna pistlahöfundana
okkar. Flestir voru boðnir og búnir að
leggja okkur lið en Mátar þurftu að beita
sér svolítið síðustu vikurnar til að sækja
efnið í hús. Það tókst þó að lokum. Fyrir
það ber að þakka.
Skák hefur meðbyr á Fróni í dag og
þess sér víða stað. Skáksambandið,
Skákakademían og Skákskólinn reka
öflugt starf - vel er haldið utan um lands-
liðsmál, karla og kvenna, og öðlingar og
eldri borgarar hafa líklega aldrei verið
eins virkir og nú um stundir. Verk-
efnið Skák alls staðar virðist vera aö ná
markmiði sínu. Það er teflt í skólum,
opinberum byggingum og heitum
pottum - og svo eigum við okkur dag í
almanakinu - Skákdaginn!
Við Mátar höfum notið góðs af þeim
hlýja vindi sem leikur um íslenskt skáklíf.
Það hefur verið skemmtilegt og gefandi
að bjástra við þennan dreka - reyna
að koma honum í loftið. í upphafi var
hann þungur og erfiður viófangs og
léði erindi okkar ekki máls. En hægt og
sígandi tók hann sönsum meðan bætti
í hnúkaþeyinn. Og nú, hálfu ári eftir að
við tókum að okkur verkefnið, er hann
kominn í loffið blessaður - flugdrekinn
ógurlegi - og svífur ósköp sakleysislega
yfir hausamótunum á okkur.
Um leið og við óskum íslenskum skák-
áhugamönnum og skákunnendum til
hamingju með ritið leggjum við drekann
okkar og draum í þínar hendur. Góða
skemmtun!
Flýgur yfir höfði hátt
í hlýjum sunnanvindi.
Fjarskalega drekinn dátt
sér dillar létt af yndi.
P.h. Máta PálmiRagnar Pétursson